Bókasafn Kópavogs
Sumarstarfið hjá okkur á bókasafninu er mjög öflugt og mikill metnaður lagður í það enda er safnið mikið sótt. Gestirnir okkar eru duglegir að sækja sér kiljur í sumarfríið og börnin eru dugleg að halda lestrinum við. Við höldum utan um æestur barnanna ásamt henni Lindu Landnámshænu. Það virðist sem veðrið skipti litlu máli enda státum við okkur af svo fallegum inni- og útisvæðum hér í menningarmiðjunni. Segir Lísa Valdimarsdóttir, forstöðumaður Bókasafnsins í Kópavogi.
Alla miðvikudaga frá 15:00 til 17:30 í sumar bjóðum við upp á föndursmiðjur á aðalsafni í Hamraborg 6a og Lindasafni í Núpalind 7. Smiðjurnar hafa heldur betur slegið í gegn, til að mynda mættu um 500 manns síðastliðinn miðvikudag. Smiðjurnar eru notalegar samverustundir fyrir börn og fullorðna þar sem þemað er Gloría bókasafnskisa, hvort sem verið er að föndra kort, bókamerki eða grímur.
Sumarlesturinn sívinsæli er í fullum gangi eins og ég minntist á áðan en í sumar býður Linda landnámshæna öllum börnum sem eru byrjuð að lesa í ævintýralega svaðilför um landið sitt – Terra Gallina.
Bókasafnið og Náttúrufræðistofa hafa slegið höndum saman og bjóða upp á stórskemmtilegt verkefni fyrir börn, Umhverfisofurhetjan, en það er vitundarvakningarverkefni þar sem börn geta leyst fimm umhverfistengd verkefni og fá þá titilinn umhverfisofurhetja og karsafræ í verðlaun.
Svo má ekki gleyma svölunum góðu á þriðju hæð. Þar er dásamlegt að setjast þar niður með góða bók og njóta blíðunnar segir Lísa að lokum.

Hér má svo finna alla viðburði safnsins í sumar Viðburðir – Bókasafn
Opnunartímar safnins:
Aðalsafn
8:00 til 18:00 alla virka daga
11:00 – 17:00 laugardaga
Lokað á sunnudögum
Lindasafn
13:00 – 18:00 alla virka daga
Lokað um helgar í sumar
Bókaboxið í Vallakór er aðgengilegt á opnunartíma hússins.
Hlökkum til að sjá þig í sumarskapi.