Dagana 2.-9. mars tók Bókasafn Kópavogs á móti öllum nemendum í 4. bekk í grunnskólum Kópavogs.
Rithöfundurinn og leikarinn Ævar Þór Benediktsson hélt bráðskemmtilegt erindi fyrir börnin þar sem hann ræddi við þau um sköpunarferlið, hvernig sögur verða til, hvernig allir geta fundið sína eigin rödd og samið sínar eigin sögur. Þá lagði hann áherslu á mikilvægi lesturs, bæði sér til ánægju og sem leið til að efla ímyndunaraflið, orðaforða og sköpunargáfuna.
Krakkarnir tóku virkan þátt og spurðu ótal spurninga svo úr urðu líflegar samræður við rithöfundinn.
Heimsóknirnar voru hluti af verkefninu Menning fyrir öll, sem miðar að því að gera menningu og skapandi starf aðgengilegt öllum börnum í Kópavogi. Jafnframt var heimsóknin upptaktur fyrir lestrarátakið Bókavogur sem hefst 14. mars með opnunarhátíð á Bókasafni Kópavogs. Í Bókavogi sameinast leik- og grunnskólar, skólabókasöfn, almenningsbókasöfn og jafnvel sundlaugar bæjarins í átaki til að hvetja fjölskyldur í Kópavogi til að lesa saman. Markmiðið er að skapa jákvæða upplifun í kringum lestur og styrkja læsi sem grunn að námi, sköpun og jákvæðum tengslum.
Á opnunarhátíð Bókavogs mun m.a bæjarstjóri formlega setja átakið. Gunnar Helgason ætlar koma og spjalla við börn um lestur. Blær Guðmundsdóttir og Eva Rún Þorgeirsdóttir bjóða upp á smiðju þar sem þemað er bækur og myndlýsingar og leikkonan Þórunn Arna Kristjánsdóttir mun leiklesa sumar af þekktustu sögum Astridar Lindgren.
Bókasafn Kópavogs hlakkar til að halda áfram að efla lestraráhuga barna og skapa jákvæðar minningar tengdar bókum.















