17.maí 2023 17:00 - 18:00

Sýningarstjóraleiðsögn | Brynja og Cecilie

Gerðarsafn

1. hæð

Brynja Sveinsdóttir og Cecilie Cedet Gaihede sýningarstýrur grunnsýningar á verkum Gerðar Helgadóttur, GERÐUR, leiða gesti um sýninguna miðvikudaginn 17. maí kl. 17.

Gerðarsafn opnaði í fyrsta skipti fasta grunnsýningu tileinkaða Gerði Helgadóttur (1928-1975) á neðri hæð safnsins. Sýningin leggur ríka áherslu á skúlptúr og varpar ljósi á sköpunarkraft, framúrstefnu og tilraunamennsku listakonunnar, margbreytileika verkanna og fjölbreyttan efnivið.

Gerður var frumkvöðull innan höggmyndalistar og brautryðjandi í þrívíðri abstraktlist á Íslandi. Gerður ögraði viðurkenndum hugmyndum um myndlist með tilraunakenndri nálgun sinni á ólíkan efnivið, breytilega fagurfræði og vísanir sem mótuðust af breiðu áhugasviði hennar.

Tilraunakennd, stórhuga og framúrstefnuleg nálgun Gerðar markaði henni sess sem einn helsti myndhöggvari þjóðarinnar og kallast sterkt á við myndlist samtímans. Á tímum sem einkennast af örum breytingum, óendanlegum möguleikum og stöðugri óvissu veitir arfleifð Gerðar okkur innblástur. Verk hennar vekja okkur til umhugsunar og hvetja okkur til að nálgast ólíkan efnivið, fagurfræði, nálgun og vísanir á eigin forsendum.

Til grundvallar sýningarinnar er rannsóknarverkefni sem stendur yfir á safninu á listferli Gerðar Helgadóttur og safneign Gerðarsafns. Sett hefur verið upp rakastýrt varðveislurými inni í sýningunni til að framlengja listaverkageymslu safnsins og bjóða þannig sýningargestum að skoða fjölda verka auk þess að tryggja bestu varðveisluskilyrði fyrir verkin.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

31
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
Salurinn
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

31
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
01
nóv
Gerðarsafn
01
nóv
Gerðarsafn
02
nóv
Bókasafn Kópavogs
03
nóv
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs
05
des
23
des
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

31
okt
01
nóv
Gerðarsafn
01
nóv
Gerðarsafn
11
nóv
Gerðarsafn
06
des
Gerðarsafn

Sjá meira