06.apr 2019 13:00

Útlína I Opnunarviðburður

Gerðarsafn

Velkomin á opnunarviðburð sýningarinnar Útlína með verkum, skissum og rannsóknarefni tíu nútíma- og samtímalistamanna úr safneign Gerðarsafns. Sýningarstjórarnir Brynja Sveinsdóttir og Hrafnhildur Gissurardóttir bjóða gestum í spjall um sýninguna og verður teiknileikur í boði fyrir yngstu gestina, sem listamaðurinn Edda Mac mun leiða.

Opnunarviðburðurinn er gestum að kostnaðarlausu og léttar veitingar í boði.

Útlína er sýning á verkum úr safneign Gerðarsafns frá 1950 til dagsins í dag. Á sýningunni er útlínan notuð til þess að tengja verk þvert á miðla. Línan flæðir á milli teikninga, málverka og prentkverka og útlínan öðlast eigið líf í (þrívíðu) formi skúlptúra og rýmisverka. Útlínan verður allt í senn: þráðurinn á milli verka, afmörkun og endaleysa.

Sýningin er hluti af +Safneigninni, þar sem gestum er gefinn kostur á að líta á bak við tjöldin og kynnast því sem að öllu jöfnu tilheyrir innra starfi safnsins. Unnið verður að rannsóknum á listaverkunum fyrir opnum dyrum og mun gagnagrunnur um verkin vaxa meðan á sýningu stendur. Á sýningunni Útlína má því sjá verk samhliða handteiknuðum leiðbeiningum, ljósmyndum, viðtölum við listamenn og skráningarspjöldum.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

03
mar
Bókasafn Kópavogs
04
mar
Bókasafn Kópavogs
04
mar
Bókasafn Kópavogs
04
mar
Bókasafn Kópavogs
04
mar
Náttúrusafn Kópavogs
05
mar
Bókasafn Kópavogs
06
mar
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

Sjá meira

Gerðarsafn

16
maí
06
sep
Gerðarsafn

Sjá meira