Vegna fjölda áskorana og ánægju með plöntuskiptidaginn í vor mun Garðyrkjufélag Íslands endurtaka leikinn nú í lok ágúst fyrir utan 1. hæð aðalsafns.
Plöntur fóru frekar seint af stað þetta árið svo nú er gott tækifæri til að bæta í safnið og bítta á gersemum hvers og eins.
Gott ef þau sem eiga komi með eigin (útilegu)borð.
Sjáumst á plöntuskiptidaginn!