Hvað er betra en að pakka inn fallegum gjöfum með jólapappír sem er líka listaverk? Frá 13-15 býðst börnum og fjölskyldum þeirra að búa til eigin gjafapappír með því að teikna, mála eða stimpla.
Það verður heitt á könnunni og jólastemning í húsinu frá 12-18.
Safnbúðin er opin þar sem fæst allskonar fallegt í jólapakkann, eftirprentanir, hönnunarvörur, bækur, leikföng og að sjálfsögðu, nýútkomna barnabók um Gerði Helgadóttur, Heimur Gerðar Helgadóttur á 3500 kr.
Hlökkum til að taka á móti ykkur á Þorláksmessu!