12.mar 2025 14:00 - 16:00

Lettneskar prjónahefðir í Kaðlín

Bókasafn Kópavogs

Aðalsafn

Dagný Hermannsdóttir textílkennari heimsækir hannyrðaklúbbinn Kaðlín og segir frá vettlingahefðum Letta. Einnig kemur hún með allnokkur vettlingapör sem hægt er að skoða og handfjatla.

Í Lettlandi sköpuðust einstakar hefðir í vettlingaprjóni. Konur lögðu gríðarlegan metnað í að hanna og prjóna einstaka vettlinga, munstrin voru fjölbreytt og mismunandi hefðir sköpuðust milli héraða. Í Lettlandi hafa varðveist ótrúlega fjölbreytt og mörg vettlingamunstur og enn í dag eru vettlingar mikils metnir þar í landi.

Dagný er textílkennari að mennt og forfallin prjónakona. Hún hefur farið í nokkrar prjónaferðir til Lettlands, fyrst til að sækja námskeið og svo einnig sem fararstjóri.

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín hittist alla miðvikudaga á 2. hæð aðalsafns. Heitt á könnunni og öll velkomin!

Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir, gretabjorg@kopavogur.is

Fylgist með í Facebook-hópnum Hannyrðaklúbburinn Kaðlín | Bókasafn Kópavogs.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
03
maí
Gerðarsafn
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Gerðarsafn
04
feb
Náttúrusafn Kópavogs
06
feb
Salurinn
06
feb
Náttúrusafn Kópavogs

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
06
feb
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

06
feb
Bókasafn Kópavogs
06
feb
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira