27.okt 15:00 - 17:00

Tölvuleikir og tölvuleikjanotkun ungmenna – möguleikar og hættur | Opið spjall

Bókasafn Kópavogs

Aðalsafn | Huldustofa 3. hæð

Patrikur Gunnlaugsson yfirþjálfari rafíþrótta hjá Fylki og FH verður á svæðinu frá 15 til 17 og býður foreldrum og ungmennum í opið spjall um skipulagt íþrótta- og tómstundastarf í kringum tölvuleiki í víðu og þröngu samhengi. Allt frá samfélagslegu hlutverki slíkrar starfsemi í dag og til framtíðar yfir í tölvuleiki og tölvuleikjanotkun ungmenna, hvaða leikir eru vinsælir, hvað foreldrar geta gert til að styðja börn sín og sýna áhugamáli þeirra áhuga ásamt því að stuðla að líkamlegu og andlegu heilbrigði og félagslegum tengslum.

Tilvalið fyrir foreldra og ungmenni að koma saman og spjalla um tölvuleiki og tölvuleikjanotkun. Nokkrar tölvur verða á svæðinu svo hægt verður að prófa nokkra leiki. 

Patrekur Gunnlaugsson er yfirþjálfari rafíþrótta hjá Fylki og FH. Patrekur er með BSc-gráðu í sálfræði og diplómu í kvikmyndaleiklist. Hann hefur spilað tölvuleiki allt sitt líf og keppt í rafíþróttum á Íslandi. Patrekur leitast við að varpa jákvæðu ljósi á rafíþróttir og hjálpa foreldrum og ungmennum að finna heilbrigt jafnvægi í tölvuleikjanotkun.

Patrekur verður í Huldustofu á þriðju hæð safnsins í tvo tíma og hægt er að kíkja við í spjall hvenær sem er á tímabilinu. Öll velkomin.

Viðburðurinn er hluti af verkefninu Bókasafnið gegn upplýsingaóreiðu og er styrktur af Bókasafnasjóði.

Deildu þessum viðburði

01
okt
Bókasafn Kópavogs
15
okt
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

17
sep
Bókasafn Kópavogs
17
sep
Bókasafn Kópavogs
18
sep
Gerðarsafn
19
sep
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

19
sep
Salurinn
19
sep
Bókasafn Kópavogs
20
sep
Bókasafn Kópavogs
20
sep
Bókasafn Kópavogs
20
sep
Náttúrufræðistofa Kópavogs
11
okt
12
okt
Salurinn
02
nóv
25
apr
Salurinn

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

17
sep
Bókasafn Kópavogs
17
sep
Bókasafn Kópavogs
19
sep
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

19
sep
Bókasafn Kópavogs
20
sep
Bókasafn Kópavogs
20
sep
Bókasafn Kópavogs
22
sep
Bókasafn Kópavogs
22
sep
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira