01.mar 2026 14:00 - 15:00

Leiðsögn | Ingunn Fjóla um form og liti Harðar

Gerðarsafn

Gerðarsafn

Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, myndlistarmaður, fjallar um sýninguna Hörður út frá sjónarhóli lita- og formfræði.

Á sýningunni eru verk Harðar sem birta nálgun hans á form- og litafræði á árunum 1955-1978. Í formrænni könnun hans má finna það svið þar sem arkitektinn og ljóðskáldið tvinnast hvað mest saman, þar sem rannsakandinn og skaparinn ná saman í heildrænni hugsun um kjarna allrar listar.

Ingunn Fjóla útskrifaðist með M.A. gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands vorið 2017. Hún útskrifaðist með B.A. gráðu í myndlist frá sama skóla árið 2007, en hafði áður lokið B.A. gráðu í listasögu frá háskólanum í Árósum. Verk Ingunnar Fjólu hafa verið sýnd víða í söfnum og galleríum. Þar ber helst að nefna einkasýningar í Listasafni Árnesinga, Listasafni Íslands, Hafnarborg og Cuxhavener Kunstverein, þátttöku í alþjóðlega tvíæringnum Prague Biennale, auk fjölda samsýninga innanlands og erlendis. Á ferli sínum hefur Ingunn Fjóla hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar.

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

19
okt
Bókasafn Kópavogs
20
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Gerðarsafn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

22
okt
Gerðarsafn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

Sjá meira

Gerðarsafn

21
okt
Gerðarsafn
22
okt
Gerðarsafn
23
okt
Gerðarsafn
11
nóv
Gerðarsafn

Sjá meira