Alþjóðleg vika heimsmarkmiðanna á bókasöfnum
Hefur þig alltaf langað til að prófa gámadýfingar en ert ekki alveg viss hvar skal byrja? Langar þig til þess að vera umhverfisvæn/n/t og spara pening samtímis? Býr í þér lúmskur spennufíkill? Hefur þú sterkar skoðanir á umhverfismálum og matarsóun? Finnst þér gaman að gramsa?
Hlynur Steinsson er reyndur gámadýfingamaður og býður hér upp á stutta kynningu á gámadýfingum (e. dumpster diving), umræðum um frískápa, deilihagkerfi og vettvang fyrir ruslaáhugafólk til þess að koma saman og deila skoðunum og aðferðum. Hentar bæði fyrir byrjendur í gámadýfingum sem og lengra komna.
Að erindinu loknu verður frískápur á Bókasafni Kópavogs formlega opnaður.















