Össur hefur verið skólastjóri Skólahljómsveitar Kópavogs frá árinu 1993 en hann hóf störf sem kennari við Skólahljómsveitina árið 1987. Þess má geta að tónlistarferill hans hófst í Skólahljómsveitinni, þegar hann var 11 ára gamall og nýfluttur í Kópavog.
Stærstan hluta starfsævi sinnar hefur Össur helgað börnum, ungmennum og tónlistaruppeldi og hlaut hann viðurkenningu Barnaheilla fyrir óeigingjarnt starf með börnum og ungmennum fyrir tveimur árum síðar.
„Að opna undraheima listarinnar fyrir börnum er mikilvægt starf og hugsanlega stundum svolítið vanmetið. Hvort sem um er að ræða tónlist, ritlist eða myndlist þá hef ég þá trú að listirnar gefi okkur góða og fallega sýn á lífið og allt það góða sem það hefur að bjóða,“ sagði Össur og bætti við að tónlistaruppeldi væri það sem stæði honum næst.
„Mér finnst svo mikilvægt að kynna alls konar tónlist fyrir börnum, bæði nýja og gamla tónlist, gæðatónlist sama hvaða tónlistarstíl við erum að tala um. Það er gaman að koma saman í hljómsveit og búa til tónlist og bæði upplífgandi og gefandi að finna góðan samhljóm og vita að maður á sinn þátt í að framkalla þennan galdur. Þetta er eitthvað sem allir tónlistarnemendur taka með sér út í lífið, hvort sem þau le ggja tónlistina fyrir sig sem starf eða áhugamál.“