10.maí 2026 14:00 - 15:00

Fyrirlestur | Guja Dögg Hauksdóttir um arkitektúr Högnu Sigurðardóttur

Gerðarsafn

Gerðarsafn

Verið hjartanlega velkomin á fyrirlestur Guju Daggar um arkitektúr Högnu Sigurðardóttur.

Fyrirlesturinn er um valin verk Högnu Sigurðardóttur (1929-2017), arkitekts sem þekkt er fyrir afar frumlega byggingarlist sína með óvenju persónulega nálgun með innblástur sóttan jafnt í íslenskan byggingararf og samtíma strauma um miðbik 20.aldarinnar. Högna er menntuð í París og vann flest sín verk í Frakklandi. Af þeirri handfylli bygginga sem hún hannaði á Íslandi eru fjórar hannaðar í Kópavoginum á tímabilinu 1961-1991, og verða þeim gerð góð skil með hliðsjón af hugmyndaheimi hennar á bak við verkin.

Guja Dögg Hauksdóttir er menntuð arkitekt cand.Arch. frá Arkitektaskólanum í Árósum, Danmörku. Að loknu námi starfaði hún í Árósum en eftir heimkomu til Íslands hefur hún aðallega fengist við byggingarlist á þverfaglegum grundvelli rannsókna og miðlunar á margvíslegu formi – frá þáttagerð og fyrirlestrum til skrifa og kennslu. Guja Dögg er ass. prófessor og fagstjóri við byggingarlistardeild Listaháskóla Íslands. Hún vinnur að bók um ævistarf Högnu undi titlinum Skáldað í steypu.

Viðburðurinn er haldin í tengslum við HönnunarMars

Meðfylgjandi mynd er eftir Högnu Sigurðardóttur

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

17
ágú
Salurinn
18
ágú
Bókasafn Kópavogs
18
ágú
Bókasafn Kópavogs
19
ágú
Bókasafn Kópavogs
19
ágú
Bókasafn Kópavogs
19
ágú
Bókasafn Kópavogs
20
ágú
Bókasafn Kópavogs
20
ágú
Bókasafn Kópavogs
21
ágú
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

Sjá meira

Gerðarsafn

26
ágú
Gerðarsafn
16
sep
25
jan
Gerðarsafn
18:00

Valgerður

Sjá meira