Verið hjartanlega velkomin á leiðsögn Hildigunnar Birgisdóttur um sýninguna Landlæg Hamingja eftir Jeremy Deller 5. ágúst klukkan 12:15📯🏋️♀️🎉
Hildigunnur Birgisdóttir (f.1980) býr og starfar í Reykjavík hún hefur sýnt víða en hún var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíræingnum, 2024. Verk hennar hafa einnig verið á sýningum í Listasafni Reykjavíkur; listasafninu GES-2, sem rekið er af V-A-C Foundation í Moskvu og H2H í Aþenu. Verk hennar má meðal annars finna í safneign Listasafns Íslands, Listasafns Reykjavíkur og Nýlistasafnsins. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2003.
Nánar um sýninguna:
Í kjarna listsköpunar Jeremy Dellers er löngun til að skapa tengingar. Til að sýna samfélag okkar og þær marglaga flækjur sem hlykkjast um það með töframætti myndlistar. Í verkum sínum leiðir hann saman ólíka þætti, stígur svo aftur og sér hvað verður. Leyfir listinni að verða til í dýnamísku samspili með þeim sem mæta henni. Sýning Deller tekur yfir báða sali Gerðarsafns með The Triumph of Art (2026) og Warning Graphic Content (1993-2026).
The Triumph of Art (2026) er nýjasta verk Deller, frumsýnt í Gerðarsafni. Innsetning sem fangar samfélagslegt „mega“samstarf þar sem Deller vann gjörninga með áhugaleikurum, listafólki, tónlistarfólki, kraftlyftingarfólki og sundballerínum víðsvegar um Bretland.
Warning Graphic Content (1993-2026) er eins konar yfirlitssýning prentverka Deller. Þau fanga mikla umrótatíma og vísa í sögulega atburði og þekktar persónur. Verkin, sem birtist oft í almannarýmum, spretta upp úr grasrót og streitast gegn því að vera fínpússuð eða háfleyg. Mörg verkanna eru unnin í samstarfi við grafíska hönnuðinn Fraser Muggeridge.
Jeremy Deller (f. 1966, London) er einn þekktasti samtímalistamaður Bretlands. Hann hlaut Turner-verðlaunin árið 2004 og var fulltrúi Bretlands á Feneyjatvíæringnum árið 2013.
Sýningarstjórar sýningarinnar eru Studio Studio (Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir).







