Miðvikudaginn 25. júlí kl. 20:00-22:00 býður listahópurinn Endurhugsa gestum í samtal um framtíðina þar sem reynt verður að finna góðar lausnir á umhverfisvánni og búinn verður til sameiginlegar hugmyndabanki. Í upphafi viðburðarins verður boðið upp á grænmetisrétt á neðri hæð Gerðarsafns þar sem Garðskálinn var áður.
Viðburðurinn er liður í dagskrá Menningarhúsanna í Kópavogi, sem eru Bókasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Náttúrufræðistofa Héraðsskjalasafn og Salurinn.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Á heimasíðu er hægt að nálgast upplýsingar um frekari viðburði:
https://www.endurhugsa.com/home