Í tengslum við Sýninguna Ó, hve hljótt verður kviksjá viðfangsefni fjölskyldustundarinnar í Gerðarsafni sem Hrund Atladóttir mun leiða. Kviksjá eða kaleidóskóp er rörlaga leikfang sem er alsett speglum að innanverðu sem endurspegla litlar skrautflygsur á borð við glerbúta, perlur eða speglabrot sem komið hafa verið fyrir í rörinu. Þegar horft er í kviksjána má sjá samhverf form og með því að snúa henni ummyndast þau og breytast líkt og fyrir töfra. Kviksjáin var þekkt í Grikklandi til forna, en hún var enduruppgötvuð af bretanum Sir David Brewster árið 1816 og hefur verið vinsæl síðan. Á námskeiðinu verða búnir til allskonar útgáfur af kviksjám úr fjölbreyttu efni. Þátttakendur fá að taka sína eigin sjá með sér heim í lok dags.
Hrund Atladóttir útskrifaðist árið 2008 frá Gerrit Rietveld Academie í Hollandi. Hún býr og starfar í Reykjavík og hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og erlendis. Samhliða myndlistinni hefur hún fengist við fjölbreytt verkefni og hefur hún m.a. unnið mikið við hreyfimyndagerð fyrir ólíka miðla svo sem innsetningar á söfnum, sjónvarpsþætti, visuala og kvikmyndagerð af ýmsum gerðum.
Fjölskyldustundir á laugardögum eru í boði Menningarhúsanna í Kópavogi sem eru Bókasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Náttúrufræðistofa, Salurinn og Héraðsskjalasafn.
Smiðjan er opin öllum og er þátttaka gestum að kostnaðarlausu.