Ingibjörg Ásta Guðmundsdóttir og Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir mynda saman tvíeykið Bachelsi, en í sumar taka þær fyrir tónverk J. S. Bach og nálgast þau á nýjan hátt. Verkefnið er hluti af Skapandi sumarstörfum á vegum Kópavogsbæjar.
Miðvikudaginn 27. júní kl. 12:45 mun Bachelsi leika fyrir gesti að lokinni leiðsögn um sýninguna Gerður: Yfirlit.
Aðgangur er ókeypis.