22.ágú 2020 16:00 - 17:00

Listamannaspjall | Þegar allt kemur til alls

Gerðarsafn

Hildigunnur Birgisdóttir og Þór Sigurþórsson leiða gesti um sýninguna

Listamennirnir Hildigunnur Birgisdóttir og Þór Sigurþórsson ræða um verk sín á sýningunni Þegar allt kemur til alls, ásamt sýningarstjórunum Brynju Sveinsdóttur og Jónu Hlíf Halldórsdóttur, laugardaginn 22. ágúst kl. 16.00.

Þegar allt kemur til alls er samsýning með verkum eftir tólf íslenska samtímalistamenn. Verkin hafa verið sérvalin út frá því hvernig fegurðin í hversdagsleikanum, léttleiki, húmor og leikgleði birtast í þeim. Sýningin er viðbragð við aðstæðum í samfélaginu þessa stundina, hugleiðing um það sem máli skiptir fyrir núið, og innlegg í samtölin sem eiga sér stað þessa dagana um hvað drífur samfélagið áfram og hvað skiptir okkur máli.

Listamenn sem eiga verk á sýningunni eru Anna Hrund Másdóttir, Arna Óttarsdóttir, Gjörningaklúbburinn / Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir, Guðjón Ketilsson, Haraldur Jónsson, Hildigunnur Birgisdóttir, Klængur Gunnarsson, Kristín Dóra Ólafsdóttir, Logi Leó Gunnarsson, Ragnheiður Káradóttir, Una Björg Magnúsdóttir og Þór Sigurþórsson. Sýningarstjórar eru Brynja Sveinsdóttir og Jóna Hlíf Halldórsdóttir.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir svo lengi sem húsrúm, fjarlægðarmörk og fjöldatakmarkanir leyfa.
Athugið að sýningunni lýkur sunnudaginn 23. ágúst

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
Salurinn
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

31
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
01
nóv
Gerðarsafn
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs
05
des
23
des
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

31
okt
01
nóv
Gerðarsafn
01
nóv
Gerðarsafn
11
nóv
Gerðarsafn
06
des
Gerðarsafn

Sjá meira