04.feb 2022 ~ 05.feb 2022

Vetrarhátíð | Sirra Sigrún Sigurðardóttir

Gerðarsafn

Listaverki eftir Sirru Sigrúnu Sigurðardóttur verður varpað á Kópavogskirkju.

Vetrarhátíð í Kópavogi verður verki eftir Sirru Sigrúnu Sigurðardóttur varpað á Kópavogskirkju föstudags- og laugardagskvöldið 4. – 5. febrúar frá kl. 18 – 23.

Gerðarsafn verður opið til kl. 20 föstudaginn 4. febrúar.

Verk Sirru, sem er gert sérstaklega fyrir form Kópavogskirkju og í samtali við list Gerðar Helgadóttur, er gert að beiðni Kópavogsbæjar í tilefni Vetrarhátíðar. Hátíðin verður að þessu sinni lágstemmd og munu ljósaverk og listaverk utandyra vera í forgrunni. Verk Sirru eru kosmísk í eðli sínu og tengjast vangaveltum um stöðu okkar í gangverki náttúru, eðlisfræði og þeirra afla sem halda heiminum gangandi. Nýtt verk Sirru sækir innblástur í verk Gerðar Helgadóttur; vitnað er til lita og forma í gler- og mósaíkverkum Gerðar, en jafnframt til áhuga hennar á gangi himintungla, dulspeki og tengingu mannsins við alheiminn.

Sirra Sigrún lauk BA prófi frá Listaháskóla Íslands árið 2001 og útskrifaðist með meistaragráðu frá School of Visual Arts í New York 2013.
Hún hefur haldið einkasýningar í Listasafni Reykjavíkur, Nýlistasafninu, Listasafni Árnesinga, Hafnarborg og Kling & Bang og tekið þátt í fjölda sýninga víða um heim, . þar á meðal í Kína, Finnlandi, Bandaríkjunum og Bretlandi.
Sirra hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir list sína og m.a. fengið styrki og viðurkenningar úr listasjóðum Svavars Guðnasonar, Guðmundu Andrésdóttur og verðlaun Guðmundu S. Kristinsdóttur. Sirra Sigrún var listamaður Kærleikskúlunnar 2021.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

02
nóv
25
apr
Salurinn
15
nóv
Bókasafn Kópavogs
13:00

Luktasmiðja

15
nóv
Bókasafn Kópavogs
15
nóv
Bókasafn Kópavogs
15
nóv
Gerðarsafn
14:00

Leiðsögn

15
nóv
Náttúrufræðistofa Kópavogs
17
nóv
Bókasafn Kópavogs
18
nóv
Bókasafn Kópavogs
19
nóv
Bókasafn Kópavogs
19
nóv
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

15
nóv
Gerðarsafn
14:00

Leiðsögn

20
nóv
Gerðarsafn
20
nóv
Gerðarsafn
29
nóv
Bókasafn Kópavogs
18
des
Gerðarsafn

Sjá meira