19.ágú 12:15 - 13:00

Listamannaspjall | Menning á miðvikudögum

Gerðarsafn

Guðjón Ketilsson og Una Björg Magnúsdóttir ræða um verk sín á sýningunni Þegar allt kemur til alls

Listamennirnir Guðjón Ketilsson og Una Björg Magnúsdóttir ræða um verk sín á sýningunni Þegar allt kemur til alls, ásamt sýningarstjórunum Brynju Sveinsdóttur og Jónu Hlíf Halldórsdóttur, miðvikudaginn 19. ágúst kl. 12.15.
Þegar allt kemur til alls er samsýning með verkum eftir tólf íslenska samtímalistamenn. Verkin hafa verið sérvalin út frá því hvernig fegurðin í hversdagsleikanum, léttleiki, húmor og leikgleði birtast í þeim. Sýningin er viðbragð við aðstæðum í samfélaginu þessa stundina, hugleiðing um það sem máli skiptir fyrir núið, og innlegg í samtölin sem eiga sér stað þessa dagana um hvað drífur samfélagið áfram og hvað skiptir okkur máli.
Listamenn sem eiga verk á sýningunni eru Anna Hrund Másdóttir, Arna Óttarsdóttir, Gjörningaklúbburinn / Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir, Guðjón Ketilsson, Haraldur Jónsson, Hildigunnur Birgisdóttir, Klængur Gunnarsson, Kristín Dóra Ólafsdóttir, Logi Leó Gunnarsson, Ragnheiður Káradóttir, Una Björg Magnúsdóttir og Þór Sigurþórsson. Sýningarstjórar eru Brynja Sveinsdóttir og Jóna Hlíf Halldórsdóttir.
Erindið er liður í dagskránni Menning á miðvikudögum á vegum Menningarhúsanna í Kópavogi sem eru Bókasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Náttúrufræðistofa, Héraðsskjalasafn og Salurinn.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir svo lengi sem húsrúm, fjarlægðarmörk og fjöldatakmarkanir leyfa.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

22
apr
Bókasafn Kópavogs
22
apr
30
ágú
Bókasafn Kópavogs
22
apr
Salurinn
23
apr
Bókasafn Kópavogs
23
apr
Bókasafn Kópavogs
16:00

Hananú!

23
apr
Salurinn
20:00

Fever!

24
apr
Bókasafn Kópavogs
24
apr
Menning í Kópavogi
03
maí
04
maí
Salurinn
24
maí
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

30
apr
10
ágú
Gerðarsafn

Sjá meira