25.jún 2020 19:00 - 20:00

Tríó Sól & Gerður Helgadóttir

Gerðarsafn

Tríó Sól flytur ljúfa tóna í samtali við verk Gerðar Helgadóttur

Fimmtudaginn 25. júní kl. 19.00 mun strengjatríóið Tríó Sól flytja ljúfa tóna í Gerðarsafni í samtali við verk Gerðar Helgadóttur. 
Tríó Sól er nýlega skipað þeim Maríu Emilíu Garðarsdóttur fiðluleikara, Sólrúnu Ylfu Ingimarsdóttur fiðluleikara og Þórhildi Magnúsdóttur víóluleikara. Þær eiga það sameiginlegt að stunda allar nám við Konunglega danska tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn.
Tónleikarnir fara fram á neðri hæð safnsins, inn í grunnsýningunni GERÐUR þar sem sjónum er beint að járnverkum Gerðar frá 6. áratugnum. Gerður Helgadóttir hlustaði mikið á tónlist þegar hún vann að verkum sínum, sér í lagi klassíska tónlist, og má finna ýmsar tilvísanir í tónlist í titlum verka hennar. Á tónleikunum mun Tríó Sól flytja valin verk eftir tónskáldin Antonín Dvorák og Arcangelo Corelli.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis!

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
Salurinn
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

31
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
01
nóv
Gerðarsafn
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs
05
des
23
des
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

31
okt
01
nóv
Gerðarsafn
01
nóv
Gerðarsafn
11
nóv
Gerðarsafn
06
des
Gerðarsafn

Sjá meira