20.okt 2021 12:15 - 12:45

Menning á miðvikudögum | Óræð lönd: Samtöl í sameiginlegum víddum

Gerðarsafn

Hádegisleiðsögn með Bryndísi Snæbjörnsdóttur.

Óræð lönd: Samtöl í sameiginlegum víddum
Snæbjörnsdóttir/Wilson 2001-2021
Listamennirnir Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson fagna nú 20 ára samstarfi með yfirlitssýningu í Gerðarsafni. Bryndís ræðir um verk sín í hádeginu miðvikudaginn 20. október kl. 12.15.
Bryndís og Mark staðsetja list sína sem rannsóknar- og samfélagslist og nota gjarnan samspil manna og dýra í verkefnum sínum til að skoða málefni er varða sögu, menningu og umhverfið. Með listrannsóknum sínum kveikja þau hugleiðingar og samtal um hvernig heimurinn er að breytast og hlutverk okkar mannfólksins í þeim breytingum. Listamennirnir nálgast listsköpun sína með vistfræðilegri og heildrænni sýn. Verk þeirra eru þverfagleg í eðli sínu og taka gjarnan form innsetninga með skúlptúrum, fundnum hlutum, vídeóverkum, hljóði, teikningum, ljósmyndum og textum. 
Sýningarstjóri: Becky Forsythe

snaebjornsdottirwilson.com/

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

03
mar
Bókasafn Kópavogs
04
mar
Bókasafn Kópavogs
04
mar
Bókasafn Kópavogs
04
mar
Bókasafn Kópavogs
04
mar
Náttúrusafn Kópavogs
05
mar
Bókasafn Kópavogs
06
mar
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

Sjá meira

Gerðarsafn

06
mar
Gerðarsafn
11
mar
Gerðarsafn
16
maí
06
sep
Gerðarsafn

Sjá meira