31.ágú 14:00

Mósaík teppasmiðja | Fjölskyldustund

Gerðarsafn

Smiðjur, tónlist, dans, matur og allsherjar fjör!

Myndlistarkonan Þórdís Erla Zoëga verður með mósaík – teppasmiðju á neðri hæð Gerðarsafns á karnivali í upphafi hausts í öllum Menningarhúsunum í Kópavogi. Þar gefst gestum færi á að læra um aðferðir við mynstur gerð, hvernig maður býr til reglur og notar endurtekningar á sama tíma og sköpunarkrafturinn fær að leika lausum hala. Byrjað verður á æfingum á pappír og pappa kartoni og svo fær hver þátttakandi viðar spjald sem notað verður til að skapa mynstur í sameiginlegu mósaík – teppi sem áætlað er að taki yfir salinn á neðri hæð safnsins. Markmiðið er að hver þátttakandi gerir symmetrískt verk sem gengur út frá aðferðinni ,,eitt leiðir að öðru”.  Mögulegt verður fyrir gesti að sækja spjöldin í lok dags eða í vikunni á eftir.
Þórdís Erla Zoëga býr og starfar í Reykjavík en hún fluttist heim skömmu eftir útskrift árið 2012 frá Gerrit Rietveld Academy í Amsterdam, með BFA gráðu úr Audio Visual deild. Hún hefur sýnt víða í Evrópu en á Íslandi hefur hún m.a. gert verk fyrir Listahátíð í Reykjavík, Gerðarsafn og sýnt í D-sal Hafnarhússins. Hún meðlimur í listahópnum Kunstschlager og hélt uppi sýningardagskrá í Kunstschlager Stofu í Listasafni Reykjavíkur. Hún var tilnefnd til Grímunnar fyrir búninga ársins í verkinu DADA dans sem hún vann með Íslenska Dansflokknum. Þórdís gerir verk í hinum ýmsu miðlum sem eru spunnin út frá nánd, symmetríu og jafnvægi.

Smiðjan og aðrir dagskrárliðir karnivalsins eru opnir öllum og er þátttaka gestum að kostnaðarlausu!
 
Karnivalið dreifist um öll Menningarhúsin og verður dagskráin eftirfarandi:
13:00 – 15:00 Textíl- og útsaumssmiðja í Náttúrufræðistofu
13:30 Danspartý á bókasafni
14:00 – 16:00 Teppasmiðja í Gerðarsafni
14:00 Vala Guðna og félagar flytja tónlist frá ýmsum löndum í Salnum
13:00 – 15:00 Kubbafjör frá Smástund á útivistasvæði eða á fyrstu hæð Gerðarsafns
14:00 – 16:00 Henna-tattú og marokkóskt teboð í anddyri Náttúrufræðistofu
15:00 Frískandi fjölskyldujóga
 
Ef veður leyfir verður hluti viðburðanna haldinn úti.
Dagskráin er liður í Fjölskyldustundum á laugardögum. 
Mynd: Art Bicknick

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

18
maí
Gerðarsafn

Together | Palestínsk útsaumssmiðja

18
maí
Gerðarsafn
13:00

Leiðsögn á pólsku

21
maí
Bókasafn Kópavogs
10:00

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

21
maí
Bókasafn Kópavogs
17:00

Sumarlestrargleði

22
maí
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

22
maí
Bókasafn Kópavogs
12:15

Leslyndi með Lilju Sigurðardóttur

23
maí
Bókasafn Kópavogs
17:00

Sagnaganga: Fantasíur og hrollvekjur í Kópavogi

24
maí
Salurinn
20:00

HILDUR

27
maí
01
jún
Bókasafn Kópavogs
08:00

Plöntuskiptimarkaður

03
jún
08
jún
Bókasafn Kópavogs
08:00

Bókamarkaður

01
júl
06
júl
Bókasafn Kópavogs
08:00

Bókamarkaður

12
ágú
17
ágú
Bókasafn Kópavogs
08:00

Bókamarkaður

Sjá meira

Gerðarsafn

18
maí
Gerðarsafn
18
maí
Gerðarsafn
02
jún
16
jún
Gerðarsafn
09
jún
Gerðarsafn
Heiðar Kári

Sjá meira