24.nóv 2020 12:15

Shit hvað allt er gott | Samtal um sýningu Magnúsar Helgasonar

Gerðarsafn

Sent út á Facebook.

Hallgerður Hallgrímsdóttir ræðir við Magnús Helgason, myndlistarmann, í tilefni sýningarinnar SKÚLPTÚR / SKÚLPTÚR sem nú stendur yfir í Gerðarsafni en þar má sjá tvær einkasýningar á verkum Magnúsar Helgasonar og Ólafar Helgu Helgadóttur.

—————-
Sýning Magnúsar, Shit hvað allt er gott, einkennist af gáskafullri uppfinningasemi. „Myndlist sem hittir mann beint í hjartað heillar mig mest, þegar áhorfandinn fær vatn í munninn eða örari hjartslátt þegar hann sér verkið,“ segir Magnús. „Leikgleði og undraverð segulstál eru í fararbroddi í sýningunni. Ég er að vinna með náttúruna og kannski má segja að þetta sé pínu eins og vísindasýning. Litirnir eru sterkir og lítið um fínlegheit, ég er að höfða beint til frumskynjunar fólks.“
Magnús Helgason útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá AKI í Hollandi árið 2001 og hefur síðan unnið að tilraunakenndri kvikmyndagerð, innsetningum, málaralist og skúlptúrum.
Í verkum sínum notar Magnús fundinn efnivið sem hann umbreytir ýmist í tvívíð málverk eða þrívíðar innsetningar. Hann tekur hluti og efni, sem náttúran hefur veðrað eða maðurinn skapað í öðrum tilgangi, og raðar saman í nýja heild. Í verkunum er oft brugðið á leik með greinarmuninn á efni og hlut. Í leit að fegurð og jafnvægi hitta verkin áhorfandann í gegnum skynjunina. Magnús býr og starfar á Akureyri
————-
„Sýningaröð Gerðarsafns, SKÚLPTÚR / SKÚLPTÚR, heiðrar minningu Gerðar Helgadóttur, myndhöggvara og frumkvöðuls, en ferill Gerðar einkenndist af sköpunargleði og tilraunum með ólík efni og aðferðir.
Listamennirnir sem nú sýna verk sín í Gerðarsafni nálgast einmitt sköpunina með framúrstefnulegri tilraunamennsku í hversdagsleg efni og óþrjótandi leik- og sköpunargleði. Þau nota ólíkan efnivið, oft á tíðum hversdagslega hluti sem settir eru í framandi og spennandi samhengi og biðla þannig til áhorfandans að slaka á rökhugsuninni og njóta áhyggjulaust.
Þriðjudaginn 1. desember verður sent út viðtal Brynju Sveinsdóttur við Ólöfu Helgu Helgadóttur um einkasýningu Ólafar Helgu, Hrist ryk á steini.
Nánar um sýninguna.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

28
ágú
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

28
ágú
04
sep
Bókasafn Kópavogs
28
ágú
Gerðarsafn
29
ágú
Gerðarsafn
01
sep
Bókasafn Kópavogs
01
sep
05
sep
Bókasafn Kópavogs
01
sep
Salurinn
10
sep
19
sep
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

28
ágú
04
sep
Bókasafn Kópavogs
28
ágú
Gerðarsafn
29
ágú
Gerðarsafn
03
sep
Bókasafn Kópavogs
16
sep
25
jan
Gerðarsafn
18:00

Valgerður

Sjá meira