15.05.2015-02.08.2015
Birting er samsýning á verkum eftir íslenska samtímalistamenn sem unnin eru út frá steindum gluggum Gerðar Helgadóttur (1928-1975) í Skálholtskirkju, Kópavogskirkju og víðar. Sýningunni er ætlað að vekja okkur til umhugsunar um staði á borð við söfn og kirkjur og þær athafnir sem þessum stöðum fylgja. Hvort sem um er að ræða formlegar, lágstemmdar eða hátíðlegar framsetningar hafa þær skýr áhrif á skynjun og upplifun áhorfendans. Taktföst form og litasamsetningin einkenna gluggainnsetningu Gerðar í Kópavogskirkju og mynda einskonar helgirými flæðandi forms óháð beinum trúarlegum vísunum, en er fremur ætlað að snerta áhorfandann með altækum og tilfinningalegum hætti. „Kirkjuleg“ eða „trúarleg“ þemu munu á sama hátt víkja fyrir víðtækari áherslum þar sem dregnir eru fram sammannlegir, andlegir, fyrirbærafræðilegir eða dulspekilegir þættir í verkum listamanna samtímans.
Listamenn auk Gerðar Helgadóttur (1928-1974) eru Guðrún Kristjánsdóttir (f. 1950), Erla Þórarinsdóttir (f. 1955), Guðrún Benónýsdóttir (f. 1969), Hekla Dögg Jónsdóttir (f. 1969), Dodda Maggý (f. 1981), Lilja Birgisdóttir (b. 1983), Katrín Agnes Klar (f. 1985) og Ingibjörg Sigurjónsdóttir (f. 1985).
Sýningarstjóri: Kristín Dagmar Jóhannesdóttir.
Í safnaðarheimili Kópavogskirkju voru til sýnis verk eftir Gerði Helgadóttur í tilefni sýningarinnar. Meðal verka eru steindir gluggar sem tekist var að bjarga úr kirkju sem rifin var niður í Düsseldorf í Þýskalandi ásamt tillögum Gerðar að altaristöflu í Kópavogskirkju. Umsjón: Telma Haraldsdóttir.
VIÐBURÐIR:
VIÐBURÐIR:
Föstudagur 15. maí
Föstudagur 15. maí
kl. 20:00 Gjörningur eftir Lilju Birgisdóttur á opnun sýningarinnar Birting í Gerðarsafni.
kl. 20:00
Gjörningur eftir Lilju Birgisdóttur á opnun sýningarinnar Birting í Gerðarsafni.
kl. 21: 00 Doríon : vídeó- & tónlistargjörningur eftir Doddu Maggý ásamt Kvennakórnum Kötlu.
kl. 21: 00
Laugardagur 16. maí
Laugardagur 16. maí
Laugardagur 16. maí
kl. 16:00 Endurflutningur í Kópavogskirkju. Doríon : vídeó- & tónlistargjörningur eftir Doddu Maggý ásamt Kvennakórnum Kötlu.
kl. 16:00
kl. 16:00
Endurflutningur í Kópavogskirkju. Doríon : vídeó- & tónlistargjörningur
eftir Doddu Maggý ásamt Kvennakórnum Kötlu.
Sunnudagur 17. maí
Sunnudagur 17. maí
kl.15:00 Íslenski safnadagurinn – listamannaspjall í Gerðarsafni.
kl.15:00
Íslenski safnadagurinn – listamannaspjall í Gerðarsafni.
Miðvikudagur 20. maí
Miðvikudagur 20. maí
kl. 12:15 Leiðsögn í Gerðarsafni í fylgd sýningarstjóra.
kl. 12:15
Leiðsögn í Gerðarsafni í fylgd sýningarstjóra.
Laugardagur 30. maí
Laugardagur 30. maí
kl. 14:00 Birting – fjölskyldusmiðja með Guðrúnu Benónýsdóttur. Fer fram í Gerðarsafni.
kl. 14:00
Birting – fjölskyldusmiðja með Guðrúnu Benónýsdóttur. Fer fram í Gerðarsafni.
Sýningin var liður í Listahátíð í Reykjavík, www.listahatid.is
Sýningin var liður í Listahátíð í Reykjavík, www.listahatid.is
www.listahatid.is
100 ára kosningaréttur kvenna á Íslandi studdi verkefnið.
100 ára kosningaréttur kvenna á Íslandi studdi verkefnið.