24.maí ~ 27.ágú

Flæði | Mireya Samper

Gerðarsafn

09.08.2014-05.10.2014

ágúst 2014 opnaði Mireya Samper sýningu í efri sölum Gerðarsafns í Kópavogi sem bar heitið Flæði. Á sýningunni voru innsetningar með tví- og þrívíðum verkum sem unnin voru á árunum 2013 og 2014.
ágúst 2014 opnaði Mireya Samper sýningu í efri sölum Gerðarsafns í Kópavogi sem bar heitið Flæði. Á sýningunni voru innsetningar með tví- og þrívíðum verkum sem unnin voru á árunum 2013 og 2014.
Flæði
Um list Mireyu ritar Ásdís Ólafsdóttir listfræðingur eftirfarandi: “Mireya vinnur í margs konar efni, sem ráðast af þeirri hugmynd sem þau þjóna og af ytri aðstæðum. Þannig hefur hún unnið margar site specific innsetningar víðs vegar um heiminn. Að baki þessum verkum liggur skýr hugmyndavinna sem útfærist síðan í staðmiðaðan efnivið. Öll eiga þessi verk sameiginleg viss þemu og minni sem ganga eins og rauður þráður í gegnum sköpun hennar.
Mireyu er annt um náttúruna og lætur sig umhverfismál varða, eins og birtist á fínlegan hátt í mörgum verkum. Hún lætur sig einnig manninn og örlög hans skipta.
Óendanleikinn er birting alheimsins og verk Mireyu hvetja fólk til íhugunar og innri skoðunar, jafnframt því að tengjast „ytri heimum“ og hinu kosmíska.
Mireya notar ljós eða tilvísun í það sem tákn um okkar innra sjálf, um eitthvað æðra, um frið og alheimsleg gildi. það er oft táknað með silfurlit, á steini, tré,
laufum eða pappír. Hér er því aðallega um tunglsljós að ræða, hina kvenlegu birtu nætur sem hvílir, græðir og undirbýr fyrir komu dags og sólar. 
Verk Mireyu hvetja okkur til að tengjast okkur sjálfum og um leið að opna okkur gagnvart umhverfinu, náttúrunni og hinu heilaga sem í öllu býr.“
“Mireya vinnur í margs konar efni, sem ráðast af þeirri hugmynd sem þau þjóna og af ytri aðstæðum. Þannig hefur hún unnið margar site specific innsetningar víðs vegar um heiminn. Að baki þessum verkum liggur skýr hugmyndavinna sem útfærist síðan í staðmiðaðan efnivið. Öll eiga þessi verk sameiginleg viss þemu og minni sem ganga eins og rauður þráður í gegnum sköpun hennar.
Mireyu er annt um náttúruna og lætur sig umhverfismál varða, eins og birtist á fínlegan hátt í mörgum verkum. Hún lætur sig einnig manninn og örlög hans skipta.
Óendanleikinn er birting alheimsins og verk Mireyu hvetja fólk til íhugunar og innri skoðunar, jafnframt því að tengjast „ytri heimum“ og hinu kosmíska.
Mireya notar ljós eða tilvísun í það sem tákn um okkar innra sjálf, um eitthvað æðra, um frið og alheimsleg gildi. það er oft táknað með silfurlit, á steini, tré,
laufum eða pappír. Hér er því aðallega um tunglsljós að ræða, hina kvenlegu birtu nætur sem hvílir, græðir og undirbýr fyrir komu dags og sólar. 
Verk Mireyu hvetja okkur til að tengjast okkur sjálfum og um leið að opna okkur gagnvart umhverfinu, náttúrunni og hinu heilaga sem í öllu býr.“

Mireya Samper hefur helgað sig myndlist síðan hún brautskráðist frá listaháskóla í Frakklandi árið 1993. Hún hefur haldið sýningar víða erlendis og tekið þátt í fjölmörgum listahátíðum. Síðast liðið ár var hún meðal annars með einkasýningu í hinu þekkta listasafni M.K. Ciurlionis í Litháen. Hluti  þeirrar sýningar er nú á sýningunni Flæði í Gerðarsafni. Árið 2013 tók Mireya auk þess þátt i samsýningum í fjórum löndum. Á þessu ári sýnir Mireya á Íslandi, í Svíþjóð, Ungverjalandi og Japan. Á næstu árum eru einnig fyrirhugaðar sýningar víða um lönd.
Flæði

Mireya stofnaði listahátíðina Ferskir Vindir í Garði suður með sjó árið 2010 og hefur stjórnað henni síðan. Hátíðin er tvíæringur og hafa  um 50 listamenn hvaðanæva úr heiminum hverju sinni tekið þátt í honum þau þrjú skipti sem hann hefur verið haldinn. Listafólkið dvelur hér á landi í fimm vikur, vinnur verk sína á staðnum í ýmsa miðla og sýnir í lok dvalar. Afrakstur sköpunarinnar eru myndlistasýningar, tónleikar, gjörningar og uppákomur sem allt er opið almenningi að kostnaðarlausu. Að hátíðinni lokinni verða flest listaverkin eftir í Garðinum og hefur listaverkaeign sveitarfélagsins margfaldast með þessum þremur hátíðum. Listafólkið leggur einnig af mörkum kennslu og fleira uppbyggilegt fyrir íbúa bæjarins.
Ferskir Vindir

Um feril Mireyu sjá nánar á www.mireya.is og um Ferska Vinda sjá www.fresh-winds.com.
www.mireya.is
www.fresh-winds.com

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

30
apr
Bókasafn Kópavogs
10:00

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

30
apr
02
maí
Menning í Kópavogi

Logar í skýjum

01
maí
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

02
maí
Bókasafn Kópavogs
15:00

Lesið á milli línanna

04
maí
Bókasafn Kópavogs
11:30

Lesið fyrir hunda

04
maí
Salurinn
14:00

Herra Hnetusmjör

04
maí
Menning í Kópavogi
13:00

Dr. Bæk í Kópavogi

06
maí
11
maí
Bókasafn Kópavogs
08:00

Bókamarkaður

07
maí
Bókasafn Kópavogs
10:00

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

03
jún
08
jún
Bókasafn Kópavogs
08:00

Bókamarkaður

01
júl
06
júl
Bókasafn Kópavogs
08:00

Bókamarkaður

12
ágú
17
ágú
Bókasafn Kópavogs
08:00

Bókamarkaður

Sjá meira