25.sep 2022 16:00

Listamannaspjall

Gerðarsafn

Katrín Gunnarsdóttir, danshöfundur, leiðir listamannaspjall með dönsurum sýningarinnar ALDA á síðasta sýningardegi.

ALDA er áhrifarík innsetning á mörkum dans og myndlistar, flutt af hópi kvendansara, þar sem danshöfundurinn Katrín Gunnarsdóttir sækir í sögu líkamlegrar vinnu kvenna og skoðar sérstaklega endurteknar hreyfingar og söngva, með það að markmiði að skapa aðstæður fyrir nána kvenlæga samveru, samhug og samruna.

Síðustu ár hefur Katrín unnið að því að byggja upp hreyfitungumál og myndmál þar sem mýkt, viðkvæmni, síbreytileg hreyfing og samruni líkama við umhverfi sitt leika lykilhlutverk. Í verkinu birtist margra ára farsælt listrænt samstarf Evu Signýjar Berger hönnuðar og Katrínar okkur á nýjum vettvangi þar sem listform fléttast saman og úr verður taktföst alda upplifana. Titill verksins endurspeglar ölduna sem hreyfiform en vísar einnig í tímann og söguna, hið gamla og nýja.

Listafólk: Katrín Gunnarsdóttir danshöfundur, Eva Signý Berger hönnuður og Baldvin Þór Magnússon hljóðhönnuður

Dansarar: Aðalheiður Halldórsdóttir, Anais Barthe, Halla Þórðardóttir, Heba Eir Kjeld, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Snædís Lilja Ingadóttir, Sólbjört Sigurðardóttir, Védís Kjartansdótti

Frekari upplýsingar um sýninguna.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

18
apr
Bókasafn Kópavogs
19
apr
Salurinn
20
apr
Bókasafn Kópavogs
20
apr
Bókasafn Kópavogs
20
apr
25
apr
Bókasafn Kópavogs
21
apr
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

24
apr
Gerðarsafn
25
apr
Gerðarsafn
16
maí
06
sep
Gerðarsafn

Sjá meira