11.okt ~ 10.nóv

20 ára afmælissýning Gerðarsafns

Gerðarsafn

24.05.2014-27.08.2014

Gerðarsafn fagnaði tuttugu ára afmæli sínu með sýningu árið 2014 en safnið var opnað þann 17. apríl 1994 við hátíðlega athöfn. Hvatinn að byggingu safnsins var höfðingleg gjöf sem erfingjar Gerðar Helgadóttur (1928–1975) færðu Kópavogsbæ árið 1977. Þetta voru um 1400 listaverk úr dánarbúi listakonunnar en hún lést árið 1975 aðeins 47 ára að aldri.
Fordæmi erfingja Gerðar og vissan um að listasafn myndi rísa í Kópavogi innan fárra ára áttu vafalítið sinn þátt í því að árið 1983 barst bænum önnur stórgjöf, frá minningarsjóði Barböru Árnason (1911–1975) og Magnúsar Á. Árnasonar (1894–1980). Það voru 300 verk eftir þau hjónin, 100 eftir Barböru og 200 eftir Magnús.
Árið 2009 færðu börn Valgerðar Briem Gerðarsafni að gjöf teikningasafn móður sinnar. Í þessari miklu gjöf eru rösklega 1600 teikningar af ýmsum toga, unnar með margvíslegum aðferðum, sem gefa ágæta mynd af listþróun Valgerðar.
Þessar fjórar rausnarlegu listaverkagjafir eru kjarninn í listaverkaeign Gerðarsafns. Þær eru og munu verða óþrjótandi uppspretta fyrir sýningarhald og safninu til styrktar á alla lund. Í safneign eru auk þess fjöldi verka sem keypt hafa verið frá árinu 1965 fyrir fé Lista- og menningarsjóðs.
Árið 2001 gerðu Listasafn Kópavogs-Gerðarsafn og Listaverkasafn Þorvaldar Guðmundssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur með sér vörslusamning um listaverk sem tilheyra þessu stóra einkasafni. Þau hjónin, Þorvaldur og Ingibjörg, eignuðust langstærsta „Kjarvalssafn“ á landinu í einkaeign og gefur það eitt og sér ágæta yfirsýn yfir listferil Jóhannesar S. Kjarvals.

Á sýningunni voru verk úr safneign eftir Barböru Árnason, Gerði Helgadóttur, Magnús Á. Árnason og Valgerði Briem. Úr einkasafni Þorvaldar Guðmundssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur voru sýnd verk eftir Jóhannes S. Kjarval.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

02
apr
Bókasafn Kópavogs
03
apr
Bókasafn Kópavogs
03
apr
Bókasafn Kópavogs
03
apr
Bókasafn Kópavogs
04
apr
Salurinn
20:30

Páll Óskar

04
apr
Bókasafn Kópavogs
04
apr
Bókasafn Kópavogs
10:00

Sjálfsmildi

04
apr
Bókasafn Kópavogs
05
apr
Bókasafn Kópavogs
13:00

Hugleiðsla

08
apr
13
apr
Bókasafn Kópavogs
06
maí
11
maí
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

11
apr
Gerðarsafn
13
apr
21
júl
Gerðarsafn
13
apr
28
júl
Gerðarsafn

Sjá meira