Þóra Rós jógakennari og höfundur barnabókarinnar Viltu koma með í ævintýri? verður gestur okkar á bókasafninu.
Bókin er hluti af Ævintýrajóga, sem mörg börn þekkja úr þáttunum á KrakkaRÚV. Hún mun koma til okkar á safnið, lesa fyrir börnin og fá þau að taka virkan þátt í sögunni, hitta litrík dýr og læra einfaldar jógastöður og öndun á leikandi hátt.
Foreldrar eru velkomnir að vera með. Stundinni líkur á stuttri slökun.
Hentar vel fyrir 3-6 ára börn.
Öll velkomin














