Alsjáandi – ósamþykktar skissur að altaristöflu er sýning á tillögum Gerðar Helgadóttur að altaristöflu í Kópavogskirkju. Tillögurnar vann Gerður árið 1971 en samkomulag náðist ekki um innihald þeirra og urðu þær því ekki að veruleika. Á sýningunni gefst gestum færi á að skoða skissurnar í því samhengi sem þær voru hugsaðar, inni í kirkjunni ásamt steindum gluggum Gerðar Helgadóttur.
Sýningin verður opin í Kópavogskirkju á eftirfarandi tímum:
Föstudagur 5. feb kl. 17 – 21
Laugardagur 6. feb kl. 12 -16
Sunnudagur 7. feb kl. 12 – 16
Sýningin er hluti af Vetrarhátíð í Kópavogi 2021