11.sep 2025 09:00 - 14:30

Bókasafnið í fjölmenningarlegu samfélagi 

Bókasafn Kópavogs

Salurinn tónlistarhús, Hamraborg 4
0 kr.

Þann 11. september næstkomandi mun Bókasafn Kópavogs standa fyrir ráðstefnu í fordyri Salarins, tónlistarhúsi (við hliðina á Bókasafni Kópavogs). Ráðstefnan er hugsuð fyrir starfsfólk bókasafna, öll þau sem starfa með innflytjendum, flóttafólki og hælisleitendum og öll önnur sem hafa áhuga á fjölmenningu.

Á vordögum 2024 hlaut Bókasafn Kópavogs styrk frá Bókasafnasjóði fyrir fjölmenningarlegri viðburðaröð og styrk frá Nordplus fyrir þróunar- og samstarfsverkefni milli Bókasafns Kópavogs, Hässleholm City Library í Svíþjóð og Central Library of Lääne County í Eistlandi til að bæta þjónustu við innflytjendur.

Verkefnið sneri að því að koma betur til móts við allan þann fjölbreytta hóp fólks sem heimsækir bókasöfn og þar með virkja innflytjendur betur til þátttöku í „bókasafnssamfélaginu“.

Á ráðstefnunni verður fjallað um niðurstöður verkefnisins, hvað þátttakendur lærðu og hvaða hugmyndir fæddust. Einnig verður farið yfir hvernig bókasöfn geta bætt þjónustu sína við fólk af ólíkum menningaruppruna.

Dagskrá
09:00  
Skráning og kaffi

09:20  
Kynning á fjölmenningarátaki
Central Library of Lääne County

09:40  
Kynning á fjölmenningarverkefni |
Hässleholm City Library

10:00 
Innflytjendur eru ekki einsleitur hópur
Soumia Islami Georgsdóttir  

10:30  
Kaffihlé

11:00  
Tónlistaratriði frá innflytjanda
Andres Ramon

11:20  
Reid, Eliza eða Eliza Reid?: Skráning íslenskra höfunda af erlendum uppruna
Kristín María Kristinsdóttir

11:40  
Fjölmenningarleg viðburðaröð
Bókasafn Kópavogs

12:00  
Starfið með GETA
Jorika Trunda

12:20  
Hádegismatur á Bókasafni Kópavogs

13:15  
Upplestur og spjall
Jakup Stachowiak 

13:30  
Kynning á pólsku starfi
Bókasafn Hafnarfjarðar

13:45  
Hvar er bókakosturinn?
Landskerfi  

14:00  
Umræður og hugarflug

14:30   
Ráðstefnuslit

Ráðstefnan er gestum að kostnaðarlausu. Skráning fer fram hér.

Deildu þessum viðburði

06
feb
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

07
feb
Bókasafn Kópavogs
13
feb
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

14
feb
Bókasafn Kópavogs
20
feb
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

21
feb
Bókasafn Kópavogs
27
feb
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

28
feb
Bókasafn Kópavogs
06
mar
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

01
feb
Salurinn
13:30

Dáland

02
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
03
maí
Gerðarsafn
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Gerðarsafn
04
feb
Náttúrusafn Kópavogs
06
feb
Salurinn

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

02
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
06
feb
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

06
feb
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira