20.jún 2026 13:00 - 15:00

Dagur villtra blóma | Vinnustofa í borgaravísindum

Náttúrusafn Kópavogs

Náttúrusafn Kópavogs

Langar þig að leggja til vísindanna?

Í tilefni af Degi villtra blóma ætla Náttúrusafn Kópavogs og Náttúruminjasafn Íslands í samstarfi við Flóruvini að bjóða almenningi að taka þátt í vinnustofu í borgaravísindum. Dagur villtra blóma er haldinn þriðja sunnudag júní mánaðar ár hvert, á þeim tíma þegar flóran skartar sínu fegursta.

Jóhannes Bjarki Urbancic líffræðingur og áhugamaður um borgaravísindi mun leiða vinnustofuna sem fjallar um hvað borgaravísindi snúast og af hverju þau eru mikilvæg samfélaginu. Einnig fer hann yfir hvernig almenningur getur fræðst og lagt sitt af mörkum til vísindanna með hagnýtu forriti eins og iNaturalist. Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir, líffræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands og Biodice mun kynna tvö borgaravísindaverkefni sem tengjast skráningum á flóru Íslands og framandi plöntutegundum sumarið 2026.

Vinnustofunni munu þátttakendur geta gengið út og spreytt sig á forritinu undir leiðsögn þeirra reynslu meiri. Við mælum með að fólk sé búið að hlaða niður smáforritinu í símann sinn áður en það mætir. Það má nálgast í gegnum hlekki hér neðst.

Vinnustofan er ætluð fullorðnum og öllum þeim sem hafa áhuga á náttúru, vísindum og samfélagslegri þátttöku. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg.

Aðgangur er ókeypis | öll velkomin!

Hlekkur fyrir android-tæki: https://play.google.com/store/apps/details…

Hlekkur fyrir apple-tæki: https://apps.apple.com/us/app/inaturalist/id6475737561

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

31
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
Salurinn
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

31
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
01
nóv
Gerðarsafn
01
nóv
Gerðarsafn
02
nóv
Bókasafn Kópavogs
03
nóv
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs
05
des
23
des
Salurinn

Sjá meira

Náttúrusafn Kópavogs

07
nóv
Náttúrusafn Kópavogs
18
nóv
Náttúrusafn Kópavogs
05
des
Náttúrusafn Kópavogs
30
jan
Náttúrusafn Kópavogs

Sjá meira