27.sep 2025 13:30

Dúó Freyja – Útgáfutónleikar

Salurinn

Salurinn
3.900 - 4.500 kr.

Dúó Freyja heldur útgáfutónleika með nýrri plötu laugardaginn 27.9. 2025 kl. 13:30. Dúó Freyju skipa mæðgurnar Rannveig Marta Sarc, fiðluleikari og Svava Bernharðsdóttir, víóluleikari. Á þessum tónleikum flytja þær fjögur ný íslensk verk sem samin voru fyrir þær, ásamt hinum vinsælu Madrigölum eftir Bohuslav Martinu.


Fyrri diskur Dúó Freyju kom út í tilefni af sextugsafmæli Svövu árið 2020 með sex verkum eftir sex íslenskar konur – eitt fyrir hvern áratug.


Þessi diskur kemur út í tilefni af þrítugsafmæli Rannveigar Mörtu með þremur verkum eftir þrjá íslenska karla, þá Finn Karlsson, Huga Guðmundsson og Hauk Tómasson – aftur eitt fyrir hvern áratug! Sem bónus fylgir með verk Eyglóar Höskuldsdóttur Viborg sem samið var fyrir Dúó Freyju og frumflutt á Sumartónleikum í Skálholti 2021.


Dúó Freyja hefur komið fram á Hólum, Skálholti, Norðurljósasal Hörpu og Salnum í Kópavogi og var tilnefnt til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2022.

Plötuútgáfan er styrkt af Menningarsjóði FÍH, Lista- og menningarsjóði Kópavogs og Verkefnasjóði Sinfóníuhljómsveitar Íslands (VESÍ).

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

01
feb
Salurinn
13:30

Dáland

02
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
03
maí
Gerðarsafn
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Gerðarsafn
04
feb
Náttúrusafn Kópavogs
06
feb
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Salurinn

01
feb
Salurinn
13:30

Dáland

06
feb
06
feb
Salurinn
06
feb
Salurinn
06
feb
Salurinn
07
feb
02
nóv
Salurinn
15
feb
Salurinn
19
feb
Salurinn
25
feb
Salurinn
27
feb
Salurinn

Sjá meira