30.ágú ~ 13.sep

Fjörutíu skynfæri | LHÍ

Gerðarsafn

30.08.2020 – 13.09.2020
Fjörutíu skynfæri er heiti útskriftarsýningar nemenda í hönnun og arkitektúr árið 2020.
Fjörutíu skynfæri

Á sýningunni má sjá verk eftir nemendur sem útskrifuðust úr hönnun og arkitektúr frá Listaháskóla Íslands í júní 2020. Verkin eru lokapunkturinn á þriggja ára lærdómsferli nemenda og miðla persónulegri sýn þeirra á viðfangsefni sem snerta bæði samfélagslegan veruleika, tilfinningalíf, umhverfi og vissu og óvissu um framtíðina. Verkefnin bera hvert á sinn hátt vott um skapandi og frjóa nálgun í hönnun og arkitektúr. Öll byggja þau á samstarfi og samvinnu, þekkingarleit, tilfinningum og klókindum þar sem við sögu koma í það minnsta fjörutíu skynfæri og skynjanir, s.s. hungur, þorsti, jafnvægi, kláði, kvíði, snerting, hjartsláttur, skjálfti, hreyfing, hljóð og hiti.
Sýningastjórar eru Anna María Bogadóttir, Atli Bollason, Eva María Árnadóttir og Ólöf Rut Stefánsdóttir.
Gerðarsafn er opið alla daga frá kl. 10.-17.
Ókeypis aðgangur á meðan á útskriftarsýningu LHÍ stendur.

VIÐBURÐARDAGATAL

Sunnudagur 30.08.2020
Sýning vöruhönnunar, grafískrar hönnunar og arkitektúrs opnar fyrir almenningi í safninu.

Þriðjudagur 01.09.2020
Tískusýning fatahönnunarnema fer fram í benni útsendingu á visir.is, aðeins verður hægt að fylgjast með tískusýningunni á netinu.

Fimmtudagur 03.09.2020
Sýning fatahönnunarnema opnar í Stúdíói Gerðar, fyrsta hæð

Fimmtudagur 03.09.2020
Útgáfuhóf Mænu 2020 Anddyri

LEIÐSAGNIR SUNNUDAGINN 06.09.2020:
*miðast við fjöldatakmarkanir

12:00 – 13:00
Leiðsögn um sýningu fatahönnunarnema
Linda Björg Árnadóttir, sýningarstjóri námsbrautar í fatahönnun
Stúdíó Gerðar, fyrsta hæð

13:00 – 14:00
Leiðsögn um sýningu arkitektúrnema
Anna María Bogadóttir, sýningarstjóri námsbrautar í arkitektúr
Hefst í anddyri safnsins

14:00 – 15:00
Leiðsögn um sýningu nemenda í grafískri hönnun
Atli Bollason, sýningarstjóri námsbrautar í grafískri hönnun
Hefst í anddyri safnsins

15:00 – 16:00
Leiðsögn um sýningu vöruhönnunarnema
Ólöf Rut Stefánsdóttir, sýningarstjóri námsbrautar í vöruhönnun
Hefst í anddyri safnsins

LISTAFÓLK

Útskriftarnemendur LHÍ 2020

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

23
mar
23
feb
Gerðarsafn
14:00

Leiðsögn

24
mar
Bókasafn Kópavogs
24
mar
Bókasafn Kópavogs
slökunarjóga
12:00

Stólajóga

25
mar
Bókasafn Kópavogs
25
mar
Bókasafn Kópavogs
26
mar
Bókasafn Kópavogs
26
mar
Bókasafn Kópavogs
26
mar
Salurinn
03
maí
04
maí
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

23
mar
23
feb
Gerðarsafn
14:00

Leiðsögn

27
mar
Gerðarsafn
28
mar
Gerðarsafn
05
apr
Gerðarsafn

Sjá meira