17.jan ~ 21.jún

GERÐUR

Gerðarsafn

Ný grunnsýning á verkum Gerðar Helgadóttur opnar á neðri hæð safnsins í janúar 2020. Sýningin er framhald af yfirlitssýningu sem haldin var í 2018 þar sem 1400 verk hennar í safneign Gerðarsafns voru höfð til grundvallar. Sköpunarkraftur og tilraunastarfsemi Gerðar er leiðarstef í starfsemi Gerðarsafns sem einnig endurspeglar stöðu þess sem eina listasafn landsins stofnað til heiðurs listakonu.
Á sýningunni GERÐUR er sjónum beint að járnverkum Gerðar frá 6. áratugnum. Gerður var fyrsti íslenski listamaðurinn til að nota járn í sinni list og var frumkvöðull þrívíðrar abstraktlistar hérlendis.
Í fyrstu járnverkum Gerðar notaði hún svartlakkaðar járnþynnur sem hún mótaði í geómetrísk form sem hvelfast um rýmið. Síðar vann hún nær eingöngu verk úr hárfínum járnvírum sem mynduðu teikningu í rýminu. Þau verk höfðu gjarnan vísanir í kosmískar eða dulspekilegar kenningar. Gerður var afkastamikill listamaður og voru verk hennar í stöðugri þróun og mótuðust af breiðu áhugasviði hennar. Hún lést langt fyrir aldur fram aðeins 47 ára gömul. Gerður átti margt ógert þótt hún hefði innan við fimmtugt afrekað að vinna sér sess sem einn helsti myndhöggvari þjóðarinnar á 20. öld. Sýningin mun standa til janúar 2024, þó með einstaka uppbroti.
Sýningin GERÐUR er í nánu samtali við fræðslurými Gerðarsafns, Stúdíó Gerðar, þar sem gestum gefst færi á að fræðast og skapa myndlist. Stúdíó Gerðar er einnig vettvangur fjölbreyttra viðburða sem haldnir eru í tengslum við yfirstandandi sýningar.

LISTAFÓLK

Gerður Helgadóttir

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

20
feb
17
apr
Gerðarsafn
19
mar
Bókasafn Kópavogs
19
mar
Bókasafn Kópavogs
19
mar
Náttúrufræðistofa Kópavogs
19
mar
Bókasafn Kópavogs
19
mar
Náttúrufræðistofa Kópavogs
20
mar
Bókasafn Kópavogs
20
mar
Salurinn
20
mar
Bókasafn Kópavogs
17:00

Macramé

21
mar
Gerðarsafn
03
maí
04
maí
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

20
feb
17
apr
Gerðarsafn
19
mar
Náttúrufræðistofa Kópavogs
21
mar
Gerðarsafn
23
mar
23
feb
Gerðarsafn
14:00

Leiðsögn

27
mar
Gerðarsafn
28
mar
Gerðarsafn

Sjá meira