30.apr ~ 10.ágú

Guðrún Bergsdóttir

Gerðarsafn

Gerðarsafn

„…einstaka sinnum í lífi hvers einstaklings má finna samhljóminn, augnablikin þar sem rauntíminn tekur sér bólfestu innra með okkur og við erum eitt með umheiminum. Eitt þeirra augnablika í mínu lífi var þegar ég sá verk eftir Guðrúnu Bergsdóttur í fyrsta sinn. Ég horfði í forundran á natið handverkið, litavalið, myndbygginguna, hrynjandina! Ég hafði aldrei séð vitnisburð um annan eins huga, huga sem virtist vera beintengdur framrás tímans í hverju spori.“ – Hildigunnur Birgisdóttir.

Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningu á verkum Guðrúnar Bergsdóttur miðvikudaginn 30. apríl kl. 18:00 í Gerðarsafni. Samtímis verður sýningin Barbara opnuð með verkum eftir Barböru Árnason.

Gerðarsafn heiðrar Guðrúnu Bergsdóttur (1970–2024) og listferil hennar með yfirlitssýningu í sýningarstjórn Hildigunnar Birgisdóttur. Samhliða sýningunni kemur út bókin Hugarheimar sem fjölskylda Guðrúnar kom fallega til leiðar í samstarfi við Hörpu Björnsdóttur með myndum af verkum og greinum um listsköpun hennar.

Guðrún skapaði á jaðrinum, starfaði í hliðarsenu íslenskrar myndlistar. En hún steig samt sem áður nokkur mikilvæg spor yfirstóra þröskulda inn í stóru söfnin og á aðalsviðin, mest að tilstuðlan hátíðarinnar List án landamæra. Guðrún sýndi margoft á hátíðinni og var valin heiðurslistamaður hennar árið 2011. En þó að Guðrún hafi verið staðsett á jaðrinum töluðu verk hennar inn í hjörtu ófárra myndlistarmanna og áhugafólks um myndlist sem fundu undur og innblástur í verkunum. Í starfi óhefts huga sem lagði ekki upp með að brjóta reglurnar heldur bjó til sínar eigin. Þannig setja 64 útsaumsverk mark sitt á íslenska listasögu þótt þau hafi orðið til í frelsi frá henni.

Guðrún saumaði út. Hún skissaði ekki myndina upp áður heldur saumaði einfaldlega beint út í strammann, hugur leiddi út í hönd. Hún saumaði meðal annars á ferðum sínum með strætó og í kaffipásum sínum í vinnunni sem skilur eftir sér sterka mynd í hugskoti. Af hinum ötula listamanni sem þarf ekki hina fullkomnu aðstöðu eða tíma, heldur finnur kannski einmitt hugarró í því að skapa verkin. Útsaumur er miðill þolinmæði, hinna smáu spora sem safnast saman. Áður vann Guðrún tússmyndir þar sem tússsporin eru ekki ósvipuð saumsporunum en í hennar meðförum fá eiginleikar tússlitarins að njóta sín, hvernig hann markar alltaf hverja stroku og er varhugaverður í festunni sem hann markar pappírinn með. Báðir þessir miðlar eru í senn hefðbundnir og á jaðrinum, sköpunartól sem Guðrún beitir meðólíkri snerpu, frá hraðvirkni til nosturs. Þau bera þó með sér sömu nákvæmni og natni þar sem form umbreytast í lífrænan munsturtakt. Verkin gætu kveikt löngun í fólki til að strjúka þeim varlega og syngja fyrir þau. En ekki snerta verkin. Leyfið þeim að snerta ykkur.

LISTAFÓLK

Guðrún Bergsdóttir

SÝNINGARSTJÓRN

Hildigunnur Birgisdóttir

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

03
maí
08
jún
Salurinn
08
maí
Bókasafn Kópavogs
08
maí
Bókasafn Kópavogs
08
maí
Bókasafn Kópavogs
08
maí
Salurinn
08
maí
Salurinn
08
maí
Salurinn
08
maí
Salurinn
09
maí
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

10
maí
Gerðarsafn
24
maí
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

10
maí
Gerðarsafn
11
maí
Gerðarsafn
11
maí
Menning í Kópavogi
14
maí
Gerðarsafn
15
maí
Gerðarsafn
24
maí
Gerðarsafn
15
jún
Gerðarsafn
21
jún
Gerðarsafn

Sjá meira