Í hádeginu þann 26. febrúar næstkomandi munu söngnemendur úr Tónlistarskóla FÍH, Hildur Jónsdóttir, Þorvaldur Sigurbjörn Helgason og Jóna Svandís Þorvaldsdóttir nokkur vel valin lög eftir íslenskar tónlistarkonur í tilefni þess að Konudagurinn er nýafstaðinn. Fullkomin leið til að taka stund frá önnum dagsins og njóta hækkandi sólar. Um undirleik sér Valur Þór Hjálmarsson.
Hildur Jónsdóttir er söngkona og lagasmiður úr Kópavoginum. Hildur byrjaði ung á flautu og á fiðlu í Tónlistarskóla Kópavogs, var alla sína skólagöngu í Skólakór Kársness og fór svo í klassískt söngnám í Tónlistarskóla Kópavogs. Seinna færði hún sig yfir í Tónlistarskóla FÍH í jazzsöng. Eftir langa pásu hóf hún nám þar aftur haustið 2023 og stundar núna nám í rytmískum söng á framhaldsstigi.
Þorvaldur Sigurbjörn Helgason er skáld og tónlistarmaður í hjáverkum. Þorvaldur starfar sem akademískur verkefnastjóri hjá Listaháskóla Íslands, stundar framhaldsnám í rytmískum söng við Tónlistarskóla FÍH og er meðlimur í kórnum Klið.
Jóna Svandís Þorvaldsdóttir stundar söngnám á framhaldsstigi við Tónlistarskóla FÍH og hefur einnig grunn á píanó. Hún hefur notið þess að syngja frá blautu barnsbeini, lengst af með Vocal Project – poppkór Íslands en áður með kór Verzlunarskóla Íslands og Barnakór Árbæjarkirkju. Árið 2013 stofnaði sönghópinn Jólabjöllurnar sem skemmta víða fyrir hver jól. Þá er hún söngvari í hljómsveitinni Blóðberg. Hún semur einnig eigin tónlist og gaf út plötuna ÓRAR árið 2024 ásamt vinkonum sínum.
Valur Þór Hjálmarsson fékk fyrsta gítarinn þegar hann var 11 ára og hefur komið víða við í tónlist. Hann hefur spilað með ýmsum hljómsveitum og er nú gítarleikari í hljómsveitinni Blóðberg. Valur hefur samið og gefið út fjölbreytta tónlist og komið að ýmsum verkefnum sem lagahöfundur. Hann er nú nemandi í trommuleik og er sjálflærður á píanó.
Hádegistónar FÍH / Mansöngvar – Lög eftir íslenskar konur
Þriðja árið í röð bjóða framhaldsnemendur af söngdeild Tónlistarskóla FÍH til ljúfra hádegistónleika á Bókasafni Kópavogs. Tónleikarnir fara fram síðasta fimmtudag hvers mánaðar en þar stíga tónlistarstjörnur framtíðarinnar á stokk með spennandi blöndu af gömlu og nýju, lög sem öll þekkja í bland við sjaldheyrðari smelli.
Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.











