Komdu með í vísindaferðalag þar sem við uppgötvum leyndardóma hljóðsins!🌟
Hefurðu einhvern tíma velt því fyrir þér hvernig hljóð berst okkur til eyrna? Eða af hverju við heyrum ekki í geimnum? 🤔 Í smiðjunni munum við svara þessum spurningum, en látum ekki staðar numið þar því við búum til dósasíma! 📞🎶 Og veltum því fyrir okkur hvernig hljóð getur ferðast gegnum mismunandi efni.
Aldur: 6–10 ára
Staðsetning: Tilraunastofan í Náttúrufræðistofu Kópavogs
Dagsetning: 6. nóvember frá 16:15 – 17:00
Smiðjan hefst með stuttir fræðslu 16:15, svo gerum við tilraun að henni lokinni.
Ekki missa þessu hljóðferðalagi. Vísindin bíða þín! ✨
___________________________________________
Í Vísindaskóla Náttúrufræðistofu Kópavogs þarf ekki að sækja um inngöngu heldur bara mæta! Skólinn verður með mánaðarlega viðburði í allan vetur fyrsta miðvikudag hvers mánaðar frá 16:15- 17:00. Við framkvæmum tilraunir og fræðumst um náttúruna á skemmtilegan hátt. Öll fá að bregða sér í hlutverk vísindafólks, gera tilraunir, fræðast og draga ályktanir!