Í aðdraganda hrekkjavökunnar fáum við rithöfundinn Írisi Ösp Ingjaldsdóttur í heimsókn til okkar á bókasafnið
Íris hefur vakið athygli fyrir afar spennandi og óhugnanlegar glæpasögur en í fyrstu skáldsögu sinni, Röskun, leikur hún sér að tilfinningu lesandans fyrir því hvað sé raunverulegt og hvað ekki. Þannig kallar hún fram þann óhug sem kraumar rétt undir yfirborðinu og heldur lesandanum á tánum á meðan lestri stendur. Samnefnd kvikmynd, byggð á bókinni, kom út á þessu ári.
Íris mun lesa upp úr verkum sínum, og ræða um skrif sín, sköpunarferlið og hvernig hún byggir upp spennu og ótta í sögum sínum og hvers vegna hryllingurinn og hið óvænta heillar hana sem höfund. Tilvalinn viðburður fyrir alla sem hafa gaman af spennusögum, dulúð og góðri hrollvekjustemningu í aðdraganda hrekkjavökunnar.













