18.mar 2026 12:15 - 13:00

Hvað er sníkjulífi? – Líffræði, lífsferlar og vistfræðilegt mikilvægi sníkjudýra

Náttúrusafn Kópavogs

Náttúrusafn Kópavogs

Sníkjulífi er talið hafa þróast sjáfstætt í náttúrunni oftar en tvö hundruð sinnum, og fjörtíu prósent allra þekktra dýrategunda lifa sníkjulífi. Allt frá litlum einfrumungum úr hópi frumdýra til fjölfrumunga í hópi spendýra finnast tegundir sem hafa þróað með sér misflókna lífsferla sem allir fela í sér að stela næringu frá öðrum lífverum. Þrátt fyrir tíðni og víðfemni sníkjudýra í náttúrunni þá eru þau eru ekki mikið í umræðunni. Jafnvel á ráðstefnum vistfræðinga og í tali um líffræðilega fjölbreytni eða verndun hennar skortir oft umfjöllun um sníkjudýr. Í þessum fyrirlestri mun Tryggvi reyna að bæta úr því með því að kafa í heim sníkjudýranna og kynna almenning fyrir ólíkum tegundum þeirra, lífsferlum og hlutverki þeirra í vistkerfum heimsins.

Tryggvi Guðmundsson stundar nám við Háskóla Íslands þar sem hann fléttar saman sjávar- og vatnalíffræði með sníkjudýrafræði í meistaraverkefni sem felur í sér að rannsaka sníkjudýrafánuna og magn þungamálma sem hnúðlaxinn ber með sér upp í árnar hérlendis. Tryggvi vinnur samhliða námi í verkefni hjá Hafrannsóknarstofnuninni sem snýst um flokkun vatnakerfa á Vestfjörðum en hefur einnig unnið sem leiðsögumaður á jöklum, á hálendi og í fluguveiði síðan 2015.

Hvað er er erindaröð á vegum Náttúrufræðistofu Kópavogs. Sérfræðingar úr ýmsum áttum eru fengnir til að varpa ljósi á ólík hugtök og fyrirbæri og skýra þau út á mannamáli. Viðburðarröðin er hluti af Menningu á miðvikudögum og er styrkt af menningar og mannlífsnefnd.

Aðgangur er ókeypis.
Öll velkomin!

//

Parasitism is believed to have evolved independently in nature more than two hundred times, and forty percent of all known animal species live a parasitic lifestyle. From tiny single-celled protozoans to multicellular mammals, species have developed life cycles of varying complexity that all involve stealing nutrients from other organisms. Despite the frequency and broad reach of parasites in nature, they are not often discussed. Even at ecology conferences and in conversations about biodiversity or its conservation, parasites are frequently overlooked. In this lecture, Tryggvi will attempt to address this gap by delving into the world of parasites and introducing the public to their diverse types, life cycles, and roles in the world’s ecosystems.

Tryggvi Guðmundsson is studying at the University of Iceland, where he is combining marine and freshwater biology with parasitology in a master’s project focused on investigating the parasite fauna and heavy metal concentrations carried by pink salmon as it migrates into Icelandic rivers. Alongside his studies, Tryggvi works on a project at the Marine and Freshwater Research Institute involving the classification of freshwater systems in the Westfjords. He has also worked as a glacier, highland, and fly-fishing guide since 2015.

Hvað er is a lecture series hosted by the Nature Museum of Kópavogur. Experts from various fields are invited to shed light on different concepts and phenomena and explain them in plain language. The event series is part of Culture on Wednesdays and is supported by the Culture and Community Life Committee.

Admission is free.
All are welcome!

The lecture will be held in Icelandic.

Deildu þessum viðburði

18
mar
Náttúrusafn Kópavogs

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

04
mar
Bókasafn Kópavogs
04
mar
Bókasafn Kópavogs
04
mar
Bókasafn Kópavogs
04
mar
Náttúrusafn Kópavogs
05
mar
Bókasafn Kópavogs
06
mar
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

06
mar
Gerðarsafn
07
mar
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Náttúrusafn Kópavogs

04
mar
Náttúrusafn Kópavogs
07
mar
Náttúrusafn Kópavogs
18
mar
Náttúrusafn Kópavogs
07
maí
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira