07.des 2025 12:00 - 15:00

Jólalundur | Frí fjölskylduskemmtun

Menning í Kópavogi

Guðmundarlundur

Verið hjartanlega velkomin í Jólalund í Guðmundarlundi þar sem fram fer dásamleg fjölskyldudagskrá, alla sunnudaga fram að jólum á milli 12 og 15. Ókeypis aðgangur og öll velkomin.

Ekki missa af jólaballinu hennar Rófu, tengingakapphlaupi Giljagaurs, danskennslu með Tásu, sveimandi ævintýraverum, blaðskellandi jólasveinum, rjúkandi heitu kakói, splunkunýjum ratleikjum, jólaföndri í dásamlegri náttúru eða því að kíkja í fataskápinn í Grýluhelli.

Dagskráin er endurtekin yfir daginn svo að öll ættu að komast að, og koma sér í jólastemninguna með ævintýraverurm og jólasveinum. Ratleikur, danskennsla, búningamátun, leikir og föndur verður í boði á meðan opnun stendur og hægt verður að kaupa heitt kakó og piparkökur.

Nánari tímasetningar:

Jólaball Rófu
12:20
12:50
13:20
13:50
14:20

Örtónleikar barnakóra í Kópavogi
12:30 við inngang
12:50 við kaffihúsið
13:10 við leiktækin
13:40 við kaffihúsið
14:10 við inngang

Við hlökkum til þess að sjá ykkur og njóta fjölskylduvænnar samveru í fallegu náttúrunni okkar hér í Kópavogi.

Viðburðurinn er styrktur af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar og Kópavogsbæ.

Deildu þessum viðburði

01
des
23
des
Bókasafn Kópavogs
01
des
23
des
Bókasafn Kópavogs
20
des
Bókasafn Kópavogs
21
des
Menning í Kópavogi
22
des
23
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

01
des
23
des
Bókasafn Kópavogs
01
des
23
des
Bókasafn Kópavogs
20
des
Náttúrufræðistofa Kópavogs
20
des
Bókasafn Kópavogs
21
des
Menning í Kópavogi
22
des
23
des
Bókasafn Kópavogs
02
jan
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

07
jan
Bókasafn Kópavogs
07
jan
Bókasafn Kópavogs
08
jan
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Menning í Kópavogi

21
des
Menning í Kópavogi

Sjá meira