03.apr 2020 13:00

Kúltúr klukkan 13 | GerðarStundin

Gerðarsafn

Skapandi fjölskyldusmiðja með Bergi Thomasi, Loga Leó og Unu Margréti í Stúdíói Gerðar

Gerðarsafn tekur þátt í fjölbreyttri dagskrá Menningarhúsanna í Kópavogi, sem streymt er heim í stofu á meðan samkomubann stendur yfir. Viðburðirnir eru sendir út í samstarfi við Stundina klukkan 13 á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum.
Föstudaginn 3. apríl kl. 13 verður fyrsta GerðarStundin send út frá Gerðarsafni þar sem myndlistarmennirnir Bergur Thomas Anderson, Logi Leó Gunnarsson og Una Margrét Árnadóttir leiða skapandi fjölskyldusmiðju í Stúdíói Gerðar. Þau koma með skemmtilegar hugmyndir sem börn og fullorðnir geta búið til úr einföldum og aðgengilegum efnivið heima hjá sér.
Hægt verður að sjá viðburðinn á forsíðu Stundarinnar, á Facebook-síðu Stundarinnar og Facebook-síðu Menningarhúsanna í Kópavogi.
Leyfið okkur að sjá ykkar listaverk – takið mynd og deilið á samfélagsmiðlum með merkinu #gerdarstundin
Njótum samverustunda með börnunum og sköpum saman!
Ýtið hér til að spila myndskeiðið.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

24
okt
Bókasafn Kópavogs
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

26
okt
Bókasafn Kópavogs
26
okt
Bókasafn Kópavogs
27
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndaspjall

28
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

11
nóv
Gerðarsafn

Sjá meira