23.okt 17:00 - 19:00

Kvennakraftur í Kópavogi | Læsi á stöðu og baráttu kvenna

Bókasafn Kópavogs

Aðalsafn | ljóðahorn 2. hæð

Fimmtudaginn 23. október verður haldið málþing á Bókasafni Kópavogs til heiðurs þremur öflugum konum sem störfuðu og/eða bjuggu í Kópavogi, þeim Huldu Dóru Jakobsdóttur, Gerði Helgadóttur og Ástu Sigurðardóttur.

Fundarstjóri er Arndís Þórarinsdóttir.

Hulda Dóra Jakobsdóttir var meðal annars fyrsta konan á Íslandi sem varð bæjarstjóri, árið 1957 í Kópavogi. Dætradætur Huldu, þær Elín Smáradóttir, Hanna Styrmisdóttir og Hulda Dóra Styrmisdóttir munu segja frá ömmu sinni.

Gerður Helgadóttir var einstök myndlistakona sem fékkst við skúlptúr, steint gler og mósaík. Hún var frumkvöðull innan höggmyndalistar og brautryðjandi í þrívíðri abstraktlist á Íslandi. Við hana er kennt Gerðarsafn í Kópavogi. Brynja Sveinsdóttir, forstöðumaður Gerðarsafns, mun halda erindi um Huldu.

Ásta Sigurðardóttir var rithöfundur og myndlistarkona sem bjó í Kópavogi. Vera Sölvadóttir fjallar um Ástu, en hún hefur áður fjallað um Ástu í þættinum Helmingi dekkri en nóttin.

,,Í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá því að konur á Íslandi lögðu niður launuð sem ólaunuð störf sín og stöðvuðu þannig samfélagið hafa fjölmörg samtök tekið höndum saman og lýst því yfir að árið 2025 sé Kvennaár — ár þar sem baráttan gegn kynbundnu ofbeldi og vanmati á framlagi kvenna og kvára nær nýjum hæðum — en líka ár þar sem við komum saman í krafti samstöðu og dönsum, öskrum og syngjum.“

Málþingið er partur af verkefninu Læsi á stöðu og baráttu kvenna sem er samstarfsverkefni almenningsbókasafna á Íslandi í tilefni af Kvennaári 2025.  

Verkefnið er styrkt af Bókasafnasjóði. 

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

23
okt
31
okt
Bókasafn Kópavogs
23
okt
01
nóv
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
30
okt
Salurinn
30
okt
Bókasafn Kópavogs
30
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

02
nóv
25
apr
Salurinn

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

23
okt
31
okt
Bókasafn Kópavogs
23
okt
01
nóv
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
30
okt
Bókasafn Kópavogs
30
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

01
nóv
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira