03.sep 2020 19:00 - 21:00

Kvöldopnun | Alltumlykjandi

Gerðarsafn

Fimmtudagskvöldið 3. september býður Gerðarsafn upp á lengdan opnunartíma eða til kl. 21.00 í tilefni af útskriftarsýningu nemenda í hönnun og arkitektúr. Á sýningunni Fjörutíu skynfæri má sjá verk eftir nemendur sem útskrifuðust úr hönnun og arkitektúr frá Listaháskóla Íslands í júní 2020. 

Á neðri hæð safnsins mun Alltumlykjandi framlag nemenda í fatahönnun opna fyrir almenning fimmtudaginn 3. september kl. 19:00. Tískusýning útskriftarnema í fatahönnun fór fram 1. september með mjög óvenjulegum hætti. Á tískusýningunni sjálfri voru engir gestir vegna hertra takmarkana í ljósi Covid-19, heldur streymdi Vísir henni beint. Þá er afrakstur tískusýningarinnar, bæði upptaka af sýningunni og allur fatnaðurinn, sýndur opinberlega á Gerðarsafni.

Þrír nemendur útskrifast úr fatahönnun frá Listaháskólanum þetta árið, en þær eru Sædís Ýr Jónasdóttir, Birgitta Björt Björnsdóttir og Isabella Molina. Leiðbeinendur lokaverkefna voru Linda Björg Árnadóttir, Cédric Rivrain, Anna Clausen, Anita Hirlekar og Soffía Dröfn Marteinsdóttir. Sýningarstjórn var í höndum Lindu Bjargar Árnadóttur. 

Alltumlykjandi er hluti af sýningunni Fjörutíu skynfæri sem stendur til 13. september.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

29
jan
Bókasafn Kópavogs
29
jan
Bókasafn Kópavogs
30
jan
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

31
jan
Salurinn
31
jan
Bókasafn Kópavogs
31
jan
Bókasafn Kópavogs
01
feb
Salurinn
13:30

Dáland

02
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

04
feb
03
maí
Gerðarsafn
04
feb
Gerðarsafn
06
feb
Gerðarsafn
16
maí
06
sep
Gerðarsafn

Sjá meira