Á fundinum 7. maí tökum við fyrir bókina Ólæsinginn sem kunni að reikna eftir Jonas Jonasson.
͈Ég var getin á dansgólfi í Buenos Aires árið 1927.˝
Fimm ára gömul fer Nombeko Mayeki að vinna við að hreinsa kamra í Soweto í Suður-Afríku. Hún er óskólagengin og munaðarlaus en kemst til mannvirðinga í hreinsunardeildinni þegar í ljós kemur að þótt hún sé ólæs er hún ansi leikin með tölur.Örlögin haga því svo að stúlkan úr fátækrahverfinu flækist inn í alþjóðlega stjórnmálarefskák, verður eftirlýst af alræmdustu leyniþjónustu veraldar og kynnist bræðrum á norðurslóðum sem eru nákvæmlega eins en þó gjörólíkir. Þá fer af stað ótrúleg atburðarás sem ógnar heiminum – eins og heimurinn hefur hingað til þekkt sig.
Bókaklúbburinn hentar öllum hressum konum sem vilja hittast, lesa á milli línanna og spjalla um yndislestur á léttu nótunum. Lesin er ein bók á mánuði sem er svo rædd fyrsta fimmtudag í mánuði á fundum klúbbsins.
Allar konur velkomnar á meðan húsrúm leyfir. Hlökkum til að hitta ykkur!
Fylgist með í Facebook-hópnum Lesið á milli línanna | Bókasafn Kópavogs.
Hjartanlega velkomnar!
















