Fyrsti fundur haustsins verður 3. september!
Á fundinum 3. september tökum við fyrir bókina Ótrúlega skynugar skepnur eftir Shelby van Pelt.
Tova Sullivan er nýorðin ekkja og farin að vinna við ræstingar í Sædýrasafni Sowell Bay. Það hefur alltaf átt vel við hana að hafa nóg fyrir stafni, ekki síst þegar erfiðleikar steðja að. Eins og þegar Eric, átján ára gamall sonur hennar, hvarf á dularfullan hátt þrjátíu árum fyrr.
Sædýrasafnið er fullt af furðuskepnum en sú sem vekur mesta athygli Tovu er geðstirður kyrrahafskolkrabbi að nafni Marcellus. Smám saman myndast sérstæð vinátta með ræstingakonunni og kolkrabbanum, sem reynist luma á dýrmætum upplýsingum um hvarf Erics. En tíminn til að miðla þeim er að renna út.
Bókaklúbburinn hentar öllum hressum konum sem vilja hittast, lesa á milli línanna og spjalla um yndislestur á léttu nótunum. Lesin er ein bók á mánuði sem er svo rædd fyrsta fimmtudag í mánuði á fundum klúbbsins.
Allar konur velkomnar á meðan húsrúm leyfir. Hlökkum til að hitta ykkur!
Fylgist með í Facebook-hópnum Lesið á milli línanna | Bókasafn Kópavogs.
Hjartanlega velkomnar!













