Auður Jónsdóttir verður gestur okkar í Leslyndi miðvikudaginn 6. maí.
Auði þarf vart að kynna enda er hún eitt þekktasta og virtasta skáld landsins og hefur jafnframt vakið athygli sem samfélagsrýnir og blaðamaður.
Auður hefur sent frá sér tíu skáldsögur, þrjár barnabækur og tvær fræðibækur og verk hennar hafa verið þýdd á tólf tungumál. Hún hefur hlotið Bókmenntaverðlaun Íslands og Fjöruverðlaunin tvívegis, auk þess sem hún hefur sex sinnum verið tilnefnd til þeirra fyrrnefndu og tvívegis til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Hún hefur einnig hlotið rithöfundaviðurkenningu RÚV.
Kvikmyndirnar Tryggð og Skjálfti eru byggðar á skáldsögum hennar og leikgerðin á bók hennar Fólkið í kjallaranum hlaut Grímuna sem leikverk ársins í Borgarleikhúsinu. Skáldsagan Quake (Stóri skjálfti) vakti alþjóðlega athygli þegar World Literature Today valdi hana eina af 75 athyglisverðustu skáldsögum ársins á ensku.
Bækur Auðar hafa farið víða og snert mörg hjörtu en í Leslyndi segir hún hins vegar frá bókunum sem hafa mótað hana sem lesanda og rithöfund og deilir sínum uppáhaldsbókum með gestum.
—————
Leslyndi hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk, orðið er frjálst.
Viðburðaröðin hefur notið mikilla vinsælda og skapað sér fastan sess undanfarin misseri, þegar fólk flykkist að til að sjá hina ýmsu rithöfunda deila með okkur sínum uppáhaldsbókum.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Viðburðurinn er styrktur af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar














