03.sep 2025 12:15 - 13:00

Leslyndi með Sigríði Hagalín

Bókasafn Kópavogs

Aðalsafn | ljóðahorn

Með mikilli gleði tilkynnum við að Leslyndi hefst aftur eftir sumarfrí miðvikudaginn 3. september kl. 12:15.

Fyrsti gestur haustsins er ekki af verri endanum því sjálf Sigríður Hagalín Björnsdóttir mun koma og segja okkur frá þeim bókum sem haft hafa áhrif á hana.

Sigríður Hagalín er fædd í Reykjavík 11. febrúar 1974. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík, lærði svo sagnfræði og spænskar bókmenntir við HÍ og háskólann í Salamanca og blaðamennsku við Columbia-háskóla í New York.

Sigríður hefur sent frá sér skáldsögurnar Eyland (2016), Hið heilaga orð (2018), Eldarnir (2020), Hamingja þessa heims (2022) og Deus (2023) og hafa þær vakið mikla athygli og notið mikilla vinsælda.

Leslyndi hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk, orðið er frjálst. Viðburðaröðin hefur notið mikilla vinsælda og skapað sér fastan sess undanfarin misseri, þegar fólk flykkist að til að sjá hina ýmsu rithöfunda deila með okkur sínum uppáhaldsbókum.

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Viðburðurinn er styrktur af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

04
feb
Bókasafn Kópavogs
25
feb
Salurinn
04
mar
Bókasafn Kópavogs
08
apr
Bókasafn Kópavogs
06
maí
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

01
feb
Salurinn
13:30

Dáland

02
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
03
maí
Gerðarsafn
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Gerðarsafn
04
feb
Náttúrusafn Kópavogs
06
feb
Náttúrusafn Kópavogs

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

02
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
06
feb
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

06
feb
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira