Vilborg Davíðsdóttir verður gestur okkar í Leslyndi miðvikudaginn 4. febrúar kl. 12:15.
Hún fæddist á Þingeyri árið 1965. Hún er stúdent frá Menntaskólanum á Ísafirði og tók BA og MA próf í þjóðfræði frá Háskóla Íslands.
Vilborg er einna þekktust fyrir sögulegar skáldsögur sem gerast á víkingaöld og vekja athygli á aðstæðum og sögu kvenna á fyrri tímum. Fyrsta skáldsaga Vilborgar, Við Urðarbrunn, kom út 1993 og framhald hennar, Nornadómur, árið eftir. Þær voru síðar endurútgefnar undir titlinum Korku saga og hafa verið notaðar við kennslu um árabil. Fyrir þær hlaut hún verðlaun Skólamálaráðs Reykjavíkur og Íslandsdeildar IBBY.
Vilborg fékk tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir skáldsögurnar Hrafninn árið 2005, Auði, fyrsta bindið í þríleik hennar um Auði djúpúðgu, árið 2009 og Land næturinnar árið 2023. Hún hefur einnig fengið tilnefningu til Fjöruverðlaunanna, fyrir bækurnar Ástin, drekinn og dauðinn árið 2015 og Undir Yggdrasil árið 2021. Vilborg býr í Elliðaárdalnum í Reykjavík.
Hún á þrjú börn og tvær ömmustelpur, aðra á himni en hina á jörðu, tíkina Kríu og læðuna Lúnu. Hennar tólfta bók er væntanleg í haust.
Leslyndi hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk, orðið er frjálst.
Viðburðaröðin hefur notið mikilla vinsælda og skapað sér fastan sess undanfarin misseri, þegar fólk flykkist að til að sjá hina ýmsu rithöfunda deila með okkur sínum uppáhaldsbókum.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Viðburðurinn er styrktur af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.














