Vantar þig smá aðstoð við tæknina?
Alla fimmtudaga kl. 13–14 bjóðum við eldri borgurum upp á létta tækniaðstoð á aðalsafni Bókasafns Kópavogs.
Við aðstoðum meðal annars með Rafbókasafnið, öpp og stillingar í símum, prentun og skönnun, tölvupóst og önnur einföld tæknimál.
Komdu við og við reynum að leysa málið saman!

















