23.júl 2025 15:00 - 17:00

List og náttúra

Gerðarsafn

Gerðarsafn

List og náttúra er einföld smiðja þar sem leitast er við að skapa list úr náttúrulegum efnivið. Smiðjan verður í Náttúrufræðistofu Kópavogs og jafnvel utandyra ef veður leyfir.

List og náttúra er liður af stærra verkefni sem unnið er í samstarfi Gerðarsafns og Náttúrufræðistofu Kópavogs. Tilgangurinn er að skapa tíma og rými fyrir samverustundir fjölskyldunnar. Börnin vinna með náttúrulegan efnivið undir leiðsögn myndlistarkennara og skapa eigið listaverk.

Fjölskyldur geta komið á hvaða tíma sem hentar innan þessa tímaramma, staldrað stutt við eða lengi. Náttúran verður skoðuð í gegnum linsu myndlistarinnar á mismunandi hátt og sjónum beint að einhverju áhugaverðu í umhverfinu hverju sinni. Allur efniviður verður á staðnum.

Smiðjan hentar vel fyrir börn á aldrinum 3 ára til 8 ára.
Hlökkum til að sjá ykkur!

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

09
okt
Gerðarsafn
10
okt
Bókasafn Kópavogs
10
okt
Bókasafn Kópavogs
10
okt
Salurinn
13:00

Dansdropi

11
okt
Salurinn
12
okt
Bókasafn Kópavogs
13
okt
Bókasafn Kópavogs
14
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

Sjá meira

Gerðarsafn

09
okt
Gerðarsafn
22
okt
Gerðarsafn
23
okt
Gerðarsafn

Sjá meira